Maria tekur við stöðunni 1. maí næstkomandi
Háskólinn á Akureyri hefur ráðið Mariu Helenu Ackrén sem nýjan forstöðumann Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri (SVS). Hún tekur við starfinu af Tom Barry, forseta Hug- og félagsvísindasviðs, sem hefur stýrt stofnuninni síðastliðið ár eftir sameiningu hennar við háskólann.
Maria segist spennt að ganga til liðs við samfélag Háskólans á Akureyri og snúa aftur í kunnuglegt akademískt umhverfi: „Ég hlakka til að hitta gamla og nýja samstarfsfélaga og starfa með rannsóknastofnun sem leggur áherslu á norðurslóðarannsóknir. Ég vona að ég geti komið með ný sjónarhorn og hugmyndir og byggt upp leiðandi stofnun á sviði norðurslóðarannsókna.“
Maria kemur til Háskólans á Akureyri með víðtæka fræðilega reynslu ásamt mikilli reynslu af stjórnun hvað varðar stjórnmál og stjórnsýslu á norðurslóðum. Hún lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Åbo Akademi-háskóla árið 2009. Undanfarin ár hefur hún starfað sem prófessor í stjórnmálafræði við Ilisimatusarfik/Háskólann á Grænlandi, með sérstaka áherslu á sjálfstjórn eyja. Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur hún gegnt störfum sem deildarforseti, rannsóknastjóri, lektor og gestafræðari við háskóla víða á Norðurlöndum, í Evrópu og Norður-Ameríku. Hún hefur leiðbeint fjölda doktors-, meistara- og grunnnema, tekið þátt í stórum alþjóðlegum rannsóknanetum og birt fjölmargar greinar um stjórnsýslu, sjálfstjórn, málefni norðurslóða og samanburðarstjórnmál.
Maria kemur til starfa við SVS 1. maí á þessu ári.
Fram undan sér hún mikil tækifæri í næstu skrefum stofnunarinnar og framtíðarsamstarfi: „Ég vona að við getum átt samstarf við aðrar sambærilegar stofnanir og háskóla en einnig nýtt Háskólann á Akureyri í heild sem vettvang til að byggja upp nýja kynslóð rannsakenda. Áherslan ætti að vera á fjölbreytt þverfagleg verkefni þar sem við störfum einnig náið með nærsamfélaginu og öðrum samstarfsaðilum.“
Um leið og við bjóðum Mariu velkomna í samfélag Háskólans á Akureyri viljum við færa Tom Barry okkar innilegustu þakkir fyrir ötult starf og forystu hans við stofnunina á liðnu ári.