Nær tvöföldun á meistarastigi

Umsóknum um nám við Háskólann á Akureyri fjölgar um 8,5%
Nær tvöföldun á meistarastigi

Alls bárust 2.343 umsóknir um nám við Háskólann á Akureyri fyrir haustmisseri 2026, sem er 8,5% fjölgun frá fyrra ári. Umsóknir hafa sjaldan verið fleiri og vekur sérstaklega athygli mikil fjölgun umsókna á meistarastigi, þar sem þær jukust um 87,6% á milli ára. Í ár var ekki innritað í nám við Heimskautarétt þar sem í það nám er innritað annað hvert ár.

„Góðar umsóknartölur eru ekki sjálfsagðar. Þær endurspegla það orðspor sem Háskólinn á Akureyri hefur byggt upp í gegnum árin. Við sjáum sífellt fleiri sækja í nám við HA, bæði á grunn- og framhaldsstigi. Það er mikilvæg staðfesting á því að háskólinn gegnir lykilhlutverki í menntun og samfélagsþróun á Íslandi. Sterkur háskóli á Akureyri er ekki aðeins mikilvægur fyrir Norðurland heldur landið allt,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir rektor.

Sérstaka athygli vekur að umsóknum á meistarastigi fjölgaði um 87,6% á milli ára. Þar vegur þungt aukning umsókna við Kennaradeild, Lagadeild og Viðskiptadeild.

Nýtt nám í lagareldi fær góðar viðtökur

Í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á BS-nám í lagareldi við Auðlindadeild í samstarfi við Háskólann á Hólum. Alls bárust 28 umsóknir í námið.

Lagareldi er ört vaxandi atvinnugrein á Íslandi og hefur þörf fyrir sérhæfða menntun aukist verulega á síðustu árum. Umsóknarfjöldinn bendir til þess að nýja námsleiðin mæti skýrri þörf í atvinnulífinu.

Mikill áhugi á heilbrigðisvísindum

Alls bárust hjúkrunarfræðideild 464 umsóknir í ár samanborið við 419 árið áður sem jafngildir 10,7% fjölgun og er BS-nám í hjúkrunarfræði er áfram meðal eftirsóttustu námsleiða háskólans. 

„Það segir sína sögu að 329 einstaklingar hafi sótt um í BS-nám í hjúkrunarfræði við HA í ár þrátt fyrir að aðeins 75 stúdentar geti haldið áfram að loknu fyrsta misseri. Námið nýtur afar góðs orðspors og eftirspurnin er mikil. Þessar umsóknartölur undirstrika jafnframt hversu mikilvægt er að hér verði byggt upp fullbúið hermisetur sem myndi gera okkur kleift að bjóða fleiri stúdentum námspláss að loknum klásus. Það leikur enginn vafi á því hve mikilvægt það er fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi,“ segir Áslaug.

Þá fjölgar umsóknum í iðjuþjálfunarfræði um rúm 42% enda nám sem hefur verið vel tekið og mikil þróun innan deildarinnar hvað varðar námið og námsumhverfið.

Kennaradeild sækir í sig veðrið

Umsóknum í Kennaradeild fjölgaði um 19,3% sem er áhugavert í ljósi þess að í fyrra var metfjöldi sem sótti um nám við Kennaradeild þegar umsóknum við deildina fjölgaði um 30%. Aukningin er sérlega ánægjuleg í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur um þörfina fyrir fleiri kennara á öllum skólastigum. Kennaranám við Háskólann á Akureyri gegnir mikilvægu hlutverki í menntun kennara um allt land og benda umsóknartölur til þess að áhugi á faginu fari vaxandi.

Næstu skref

Starfsfólk háskólans vinnur nú að inntöku nýrra stúdenta. Ef þú sóttir um nám við HA getur þú fylgst með stöðu umsóknar hér.

Gagnlegar upplýsingar fyrir HA-inga: