Nám í lagareldi verður í boði í haust

Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum undirrita samstarfssamning um nýtt BS-nám í lagareldi
Nám í lagareldi verður í boði í haust

Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum hafa undirritað samstarfssamning um nýtt BS-nám í lagareldi. Undirritun samningsins markar formlega upphaf sameiginlegrar námsleiðar sem miðar að því að efla menntun og þekkingu í vaxandi atvinnugrein.

Samningurinn var undirritaður í gær af Áslaugu Ásgeirsdóttur, rektor Háskólans á Akureyri, og Hólmfríði Sveinsdóttur, rektor Háskólans á Hólum.


Áslaug og Hólmfríður undirrita samninginn í rannsóknarstofum HA

Tímabært að hefja sérhæfingu í námi

Lagareldi og ræktun hafa tekið mikinn kipp á undanförnum árum, bæði hvað varðar framleiðslumagn, nýtingu tegunda og tæknilegar lausnir. Nýja BS-námið kemur til móts við skýra þörf atvinnugreinarinnar fyrir vel menntað starfsfólk með fjölbreytta þekkingu.

„Þetta er stórt og afar mikilvægt skref fyrir bæði háskólana og atvinnugreinina. Með þessu samstarfi erum við að skapa metnaðarfullt og heildstætt nám sem þjónar raunverulegri þörf í samfélaginu. Lagareldi er ört vaxandi vettvangur og með sameiginlegu námi tryggjum við að stúdentar fái bestu mögulegu menntun, byggða á reynslu, rannsóknum og þekkingu beggja háskóla,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri. Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, tekur í sama streng og segir forsenduna fyrir því að Ísland nái að byggja upp sjálfbært lagareldi og ræktun sé aukið aðgengi að sérhæfðu námi.

Háskólinn á Hólum sótti um styrk til Samstarfsjóðs háskóla í samstarfi við opinbera háskóla, Háskólasetur Vestfjarða, Matís, Hafró og Náttúruminjasafn Íslands árið 2023 til að setja saman sérhæft nám í sjálfbæru lagareldi og ræktun. Verkefnið hlaut styrk tvívegis úr sjóðnum og er BS-námsleiðin ásamt námsleið á MS-stigi afrakstur verkefnisins. Dr. Eva Küttner, rannsóknarstjóri HH og Bjarni Kristófer Kristjánsson, prófessor við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild HH, stýrðu verkefninu. Rannveig Björnsdóttir, prófessor við Auðlindadeild HA, stýrði uppbyggingu BS-námsleiðarinnar fyrir hönd Auðlindadeildar HA í góðu samráði við starfsfólk beggja háskóla.


Frá vinstri: Áslaug, Hólmfríður og Rannveig ánægðar með nýju námsleiðina

Uppbygging námsins

Skipuð verður sameiginleg námsstjórn með fulltrúa frá hvorum háskóla, sem mun hafa umsjón með faglegu innihaldi, gæðum og kynningu námsins. Námsleiðin verður sameiginleg BS-gráða (180 ECTS) sem nýtir styrkleika beggja háskóla. Námskeið í líftækni og sjávarútvegsfræði verða kennd hjá HA og svo sérhæfð námskeið í fiskeldi hjá HH.

Námið er hannað með það í huga að stúdentar geti stundað það óháð búsetu og staðlotur verða bæði á Akureyri og á Hólum. Nemendaskrá HA mun annast umsóknir og skráningar og framvinda námsins verður metin í nánu samstarfi deilda beggja háskóla. Stúdentar brautskrást frá HA en gráðunni fylgir sameiginlegur skírteinisviðauki og merki beggja háskóla.

Eins og áður segir byggir námið á verkefni sem hlaut styrk úr Samstarfssjóði háskóla árið 2023 og er hluti af stærra neti námsgráða á sviði lagareldis á landsvísu. Með samstarfi háskólanna verður til menntun sem stenst alþjóðlegan samanburð og getur stutt íslenskt lagareldi í áframhaldandi vexti.

Áhugasöm geta kynnt sér BS í lagardeldi betur hér