The Power of Sociology er ný bók sem leggur áherslu á félagslegan ójöfnuð, vald og samfélagsvirkni
Hin virta háskólaútgáfa SAGE Publications gaf nýverið út bókina The Power of Sociology: Grasping Our Unequal World eftir Guðmund Oddsson, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, Jenny M. Stuber, prófessor í félagsfræði við Norður-Flórída háskóla og James M. Thomas, prófessor við Mississippi háskóla. Um er að ræða inngangsbók í félagsfræði fyrir háskólanema sem fjallar um helstu undirsvið félagsfræðinnar og leggur sérstaka áherslu á félagslegan ójöfnuð, alþjóðlegan samanburð og samfélagsvirkni.
„Höfuðmarkmið bókarinnar er að kynna lesendur fyrir félagsfræði með því að undirstrika megin viðfangsefni fræðigreinarinnar: Félagslegan ójöfnuð. Það sem einkennir einnig bókina er áherslan á vald, sem er eitt allra mikilvægasta hugtak félagsfræðinnar. Bókin hefur aukinheldur alþjóðlegri skírskotun en aðrar inngangsbækur í félagsfræði. Jafnframt hvetur efni bókarinnar lesendur til að líta á sig sem virka þátttakendur í samfélaginu sem geta lagt sitt af mörkum til að gera nærumhverfi sitt og heiminn betri“ segir Guðmundur.
The Power of Sociology er einkum ætluð grunnnemum í inngangsnámskeiðum í félagsfræði í Bandaríkjunum. Hins vegar er bókin alþjóðlegri en aðrar bækur af þessu tagi og hentar því einnig vel til kennslu í öðrum löndum, þar með talið hérlendis.
Bókin inniheldur þó nokkur dæmi frá Íslandi og þá er forsíðumynd bókarinnar frá Íslandi, nánar til tekið frá Markarfljótsaurum á Suðurlandi. Þess má einnig til gamans geta að Oddur Atli, sonur Guðmundar, teiknaði nokkrar myndir í bókinni.
Þetta mun jafnframt vera í fyrsta sinn sem íslenskur fræðimaður gefur út inngangsbók í félagsfræði sem einnig er ætluð til kennslu í öðrum löndum.
Metnaðarfull útgáfa og viðtökur góðar
Mikið er lagt í bókina, sem er 656 blaðsíður að lengd og inniheldur 16 kafla og fjölda mynda, grafa og skýringarmynda í lit. Hægt er að kaupa The Power of Sociology sem kilju, rafbók og í stafræna lærdómsumshverfinu SAGE Vantage, sem býður upp á ýmsa valkosti á borð glósur, myndbönd og hljóðbókaspilara. Samkvæmt upplýsingum frá útgefanda hefur bókin hlotið frábærar viðtökur og fyrstu sölutölur lofa góðu fyrir framhaldið.
Um höfunda
Dr. Guðmundur Oddsson

Dr. Guðmundur Oddsson er prófessor í félagsfræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Hann varði doktorsritgerð sína í félagsfræði við Missouri háskóla í Columbia árið 2014 og var lektor við Félags- og mannfræðideild Norður Michigan háskóla frá 2014 til 2017. Árið 2023 var Guðmundur tekinn inn í Kennsluakademíu opinberu háskólanna og hefur hann verið gestafræðimaður við félagsfræðideildir Harvard háskóla og London School of Economics and Political Science. Guðmundur er formaður Félagsfræðingafélags Íslands. Rannsóknir hans hverfast um stéttaskiptingu, frávik og félagslegt taumhald og hefur hann gefið út margar fræðigreinar þessa efnis.
Dr. Jenny M. Stuber

Dr. Jenny M. Stuber er prófessor í félagsfræði við Háskólann í Norður-Flórída (University of North Florida) í Jacksonville. Hún hefur hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi kennslu og býr yfir meira en tuttugu ára reynslu af háskólakennslu. RannsóknirJenny beinast að menningarlegum víddum félagslegs og efnahagslegs ójafnaðar, með sérstaka áherslu á hvernig stéttaskipting birtist, mótast og þróast innan til dæmis skóla og nærsamfélaga. Stuber hefur skrifað fjölda bóka og fræðigreina um ójöfnuð, sjálfsmynd og margbreytileika, auk þess að vera höfundur nokkurra kennslubóka í félagsfræði.
Dr. James M. Thomas

Dr. James M. Thomas (JT) er prófessor í félagsfræði við Háskólann í Mississippi þar sem hann hefur kennt inngangsnámskeið í félagsfræði reglulega frá árinu 2012. JT er höfundur eða meðhöfundur fimm bóka og yfir 40 ritrýndra fræðigreina, bókarkafla og annarra ritgerða sem fjalla um orsakir og afleiðingar kynþáttafordóma og kynþáttahyggju í Bandaríkjunum og víðar um heim. Á árunum 2022 til 2025 var hann annar ritstjóra fræðiritsins Sociology of Race and Ethnicity.Rannsóknir hans hafa hlotið styrki meðal annars frá American Sociological Association, National Science Foundation og Russell Sage Foundation, auk þess sem þær hafa verið kynntar í virtum fjölmiðlum á borð við The New Yorker, The Washington Post og Pacific Standard. Nýjasta bók hans er The Souls of Jewish Folk: W.E.B. Du Bois, Antisemitism, and the Color Line (University of Georgia Press, 2023).