Ný úrræði styðja farsæl kynslóðaskipti í ferðaþjónustu

Kynslóðaskipti fyrirtækja í ferðaþjónustu geta verið áskorun séu þau ekki vel undirbúin.
Verena Karlsdóttir Lektor í Viðskiptadeild, Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á…
Verena Karlsdóttir Lektor í Viðskiptadeild, Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri

Erasmus+-verkefnið Next GEN Tourism hefur gefið út tvö úrræði til að hjálpa litlum ferðaþjónustufyrirtækjum að undirbúa eigendaskipti: Next GEN Tourism-hæfnirammann og námskrána.

Úrræðin eru afrakstur samstarfs sex stofnana frá Íslandi, Austurríki, Þýskalandi, Slóveníu og Írlandi og voru þróuð í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki, fræðsluaðila og sérfræðinga í stuðningi við fyrirtæki í samstarfslöndunum.

Áskorun sem fylgir kynslóðaskiptum

Lítil og meðalstór fyrirtæki eru yfir níu af hverjum tíu fyrirtækjum í evrópskri ferðaþjónustu og stór hluti þeirra er fjölskyldufyrirtæki. Án formlegrar áætlunar um hvað tekur við þegar núverandi eigandi lætur af störfum getur annars heilbrigður rekstur lent í hættu á að loka þegar kemur að kynslóðaskiptum. Með honum geta tapast störf, færni og sú staðbundna sjálfsmynd sem hefur byggst upp áratugum saman.

Rannsóknir leiddu í ljós skekkju í áherslum

Vinnan hófst með heimildarýni um kynslóðaskipti í ferðaþjónustu og breytingar í fjölskyldufyrirtækjum. Í kjölfarið voru haldnir rýnihópar í Austurríki, Íslandi og Slóveníu með eigendum ferðaþjónustufyrirtækja, fulltrúum þeirrar kynslóðar sem tekur við og þeirrar sem afhendir reksturinn, fræðsluaðilum og ráðgjöfum sem styðja við kynslóðaskipti í fjölskyldufyrirtækjum.

Svipuð mynstur komu fram í öllum löndunum þremur. Kynslóðaskipti í litlum og meðalstórum ferðaþjónustufyrirtækjum ná langt út fyrir það að skipta um eigendur. Rýnihóparnir sýndu að of mikil áhersla er oft lögð á lagalega, fjárhagslega og tæknilega þætti á kostnað samskipta, tengsla og leiðtogahæfni.

Þessar niðurstöður leiddu til verulegrar endurskoðunar á hæfnirammanum. Aukin áhersla var lögð á kynslóðaskipti og tengsl milli kynslóða, leiðtogaskipti og samfellu í rekstri auk markaðssetningar og vörumerkjastjórnunar, svið sem þátttakendur töldu skipta sköpum en fengju oft litla athygli.

Ferðaþjónustunni færð námskrá og hæfnirammi

Úrræðin gagnast tveimur markhópum. Annar þeirra eru kennarar og leiðbeinendur í starfsmenntun, s.s. þjálfarar og stuðningsaðilar fyrirtækja, sem fá heildstæða námskrá um viðfangsefni ásamt hæfniramma sem veitir skýra umgjörð utan um þann stuðning sem þeir veita.

Hinn markhópurinn eru einkaaðilar. Eigendur ferðaþjónustufyrirtækja og arftakar þeirra fá skýra mynd af því hvað kynslóðaskipti fela í sér og hvaða hagnýtu skref þeir geta tekið á meðan enn er tími til að grípa til þeirra.

Hæfniramminn skilgreinir sjö svið þekkingar, færni og viðhorfa sem eigendur og arftakar þurfa til að tryggja farsæl kynslóðaskipti. Áður en hann var gefinn út var hann rýndur af sérfræðingum og prófaður með notendum.

Sviðin sjö sem um ræðir eru eftirfarandi:

  • Leiðtogaskipti og rekstrarsamfella
  • Eigendaskipti, stjórnhættir og stjórnunarvald
  • Stefnumótun, sjálfbærni og endurnýjun rekstrar
  • Fjármálaáætlun og áhættustýring
  • Ferðaþjónustuumhverfi, markaðsumhverfi og ytri áhrif
  • Kynslóðaskipti og tengsl milli kynslóða
  • Markaðssetning og vörumerkjastjórnun

Saman veita þessi hæfnisvið eigendum, arftökum og þeim sem veita þeim ráðgjöf sameiginlegan viðmiðunargrundvöll fyrir ferli sem oft er farið í án slíkrar leiðsagnar.

Námskráin yfirfærir svo þessi hæfnisvið yfir í sjö námseiningar sem skiptast í fjórar lotur kynslóðaskiptaferlisins. Hver námseining inniheldur námsmarkmið, kennsluáætlanir, dæmisögur og hagnýt verkfæri. Námskráin er hönnuð fyrir staðnám, blandað nám eða sjálfstætt nám og hægt er að fylgja henni sem heildstæðri námsleið eða velja úr henni eftir því hvar fyrirtækið er statt í kynslóðaskiptaferlinu.

Hvað gerist næst?

Nú þegar hæfniramminn og námskráin eru tilbúin færist verkefnið yfir í þróun námsgagna fyrir kennara og leiðbeinendur og verður allt efnið aðgengilegt á einum stað. Kynningarviðburðir verða haldnir á Íslandi, á Írlandi, í Slóveníu og Austurríki árið 2027.

Bæði úrræðin eru nú aðgengileg án endurgjalds á ensku, íslensku, þýsku og slóvensku á vefsíðu verkefnisins.

Fréttabréf 2 kom einnig út á dögunum - smelltu hér til að lesa það

Fylgist með Next GEN Tourism á eftirfarandi miðlum: