Rachael Lorna Johnstone, prófessor við Lagadeild, Renata Colwell, LLM í heimskautarétti og Astrid Nonbo Andersen, sérfræðingur við Danish Institute for International Justice, hafa nýverið birt fræðigrein um markmið grænlenska sáttaferlisins
Rachael Lorna Johnstone, prófessor við Lagadeild, Renata Colwell, LLM í heimskautarétti og Astrid Nonbo Andersen, sérfræðingur við Danish Institute for International Justice, hafa nýverið birt fræðigrein um markmið grænlenska sáttaferlisins. Í greininni, „Gradual Transition: the Greenland Reconciliation Commission in a Legal Context“, er upphaflegum markmiðum sáttaferlisins, sem var á árunum 2013–2017, gerð skil í ljósi langvarandi umbreytinga Grænlendinga frá nýlenduástandi til fullveldis. Grænlenska sáttaferlið er eitt af nokkrum sambærilegum ferlum á Norðurlöndum en sker sig úr vegna sérstöðu lagalegrar stöðu Grænlands og þeirra markvissu og afmörkuðu leið að afnámi nýlendustjórnar.
Greinin birtist í 17. árgangi Yearbook of Polar Law. Allar greinar ársritsins eru aðgengilegar án endurgjalds í gegnum aðgangs- eða VPN-tengingu Háskólans á Akureyri.