Nýjar bækur Giorgios Baruchello kynntar í Genúa

Heimspeki með húmor í nýjum bókum höfundar
Nýjar bækur Giorgios Baruchello kynntar í Genúa

Þrjár nýjar bækur eftir Giorgio Baruchello, prófessor í heimspeki við Félagsvísindadeild, verða kynntar í Feltrinelli-bókaversluninni í Genúa á Ítalíu þann 1. desember næstkomandi kl. 18:00.

Þar fá gestir kynningu á nýrri trílógíu þar sem Giorgio Baruchello notar húmor og gamanleikrit til að miðla hugmyndum þriggja áhrifamikilla hugsuða. Leikari mun flytja valda kafla úr leikritunum í leiklestri og höfundar formála bókanna verða meðal gesta.

Bækurnar heita A spasso con Diogene, Ridere con Schopenhauer og L’umorismo di Pirandello og fjalla um Díógenes hundingja, Arthur Schopenhauer og Luigi Pirandello. Þær koma út hjá Crêuza de Mä Edizioni og eru hluti af ritröðinni Piccola Biblioteca della Saggezza.

Í hverri bók er stutt kynning á viðkomandi hugsuði, úrval tilvitnana eftir því sem þær eru tiltækar og nýtt gamanleikrit sem sækir innblástur í hugmyndir hans. Þannig gefst lesendum tækifæri til að kynnast hugmyndunum á aðgengilegan og leikandi hátt.

Samstarfsfólk háskólans meðal gesta

Carlo Penco, prófessor við Háskólann í Genúa, skrifar formála bókarinnar um Schopenhauer. Roberto Buccola, sálfræðingur sem starfar í anda Jungs og hefur lengi átt samstarf við HA, skrifar um Pirandello. Giovanni Robbiano, kvikmyndagerðar- og handritshöfundur sem hefur kennt við háskólann sem Erasmus-gestakennari, skrifar um Díógenes. Allir þrír verða meðal gesta við kynninguna.

Einnig er verið að skipuleggja kynningarferð um Ítalíu og rætt um mögulega sviðsetningu allra þriggja leikritanna.