Háskólinn á Akureyri (HA) og Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) hafa gert samning sem markar mikilvægt skref í samstarfi stofnananna. Með samningnum mun Gísli Kort Kristófersson, prófessor við Hjúkrunarfræðideild HA og sérfræðingur í geðhjúkrun, sinna klínískum verkefnum og rannsóknar- og þróunarstarfi á SAk sem hluta af starfi sínu við háskólann. Samningurinn tók gildi í upphafi júní á þessu ári og er til loka árs 2028.
Mikilvægt samstarf
Samstarf SAk og HA á sér langa sögu, meðal annars á sviði kennslu, rannsókna og fræðastarfs. Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri og Sjúkrahússins á Akureyri (HHSA) er sameiginlegur vettvangur stofnananna til að efla rannsóknir, nýsköpun og þekkingarsköpun í heilbrigðisvísindum. Starfsfólk SAk hefur jafnframt um árabil tekið þátt í kennslu og fræðastarfi við HA. Nýja fyrirkomulagið felur í sér frekari þróun samstarfsins og mun Gísli Kort nú sinna skilgreindum verkefnum SAk sem hluta af starfi sínu við háskólann. Hann mun samkvæmt samningnum taka þátt í rannsóknar- og þróunarverkefnum samhliða klínískum störfum á SAk.
Tengsl og þjónusta við samfélagið
„Það er gríðarlega mikilvægt að gera rannsóknir starfsfólks SAk sýnilegar og að afrakstur þeirra verði akademísk verðmæti á lands- og heimsvísu. Þetta hefur heppnast mjög vel í samstarfi sjúkrahússins og háskólans um Heilbrigðisvísindastofnun SAk og HA. Stofnunin hefur undanfarinn áratug skapað grundvöll fyrir að starfsfólk SAk hafi einnig akademíska stöðu við HA og sé virkt og sýnilegt í starfi HA,“ segir Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs HA og bætir við;
„Með því að formgera starf Gísla á sjúkrahúsinu á þennan hátt erum við að stíga fyrsta skrefið í hina áttina. Þegar verkefni akademískra starfsmanna HA á SAk verða hluti af starfi þeirra við HA á skipulegan og formlegan hátt skapast mörg tækifæri til að lyfta þessum störfum upp og gefa þeim meira gildi. Þá bæði á mælikvörðum háskólans á rannsóknum sem og til að sýna að háskólinn er svo sannarlega að uppfylla þriðja hlutverk háskólans sem eru tengsl og þjónusta við samfélagið.“
Flæðið í báðar áttir
„Það felast mikil tækifæri í því að tengja klínískt starf, rannsóknir og kennslu enn betur saman. Klíníska starfið getur skapað mikilvægar rannsóknarspurningar og um leið getum við nýtt niðurstöður rannsókna með markvissari hætti í starfi með sjúklingum,“ segir Gísli. „Tækifærið til að starfa bæði með SAk og HA gefur okkur færi á að tengja sérfræðiþekkingu stofnananna enn betur saman. Vonandi er þetta aðeins byrjunin á því að akademískir starfsmenn HA geti nýst nærsamfélaginu enn betur með sambærilegu samstarfi SAk og HA. Nú er flæðið formlega í báðar áttir og allir græða á því,“ segir Gísli.