Undanfarin tvö ár hefur Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), fyrir hönd Háskólans á Akureyri, leitt Erasmus+ verkefnið UPLIFT, sem nú er að ljúka.
Markmið verkefnisins hefur verið að efla þekkingu og færni í notkun gagnvirkrar tækni í bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu. Jafnframt hefur verkefnið stutt ferðaþjónustuaðila, kennara og nemendur við að nýta stafræna tækni og frásagnir til að skapa fjölbreyttari og áhugaverðari upplifun fyrir gesti.
UPLIFT er samstarfsverkefni sex aðila frá Íslandi, Írlandi, Danmörku, Litháen og Slóveníu og hefur sameinað þekkingu á sviði ferðaþjónustu, menntunar og tækni. Nú þegar verkefninu lýkur hefur allt fræðsluefni þess verið gefið út og er aðgengilegt öllum á vef UPLIFT.
Frá hugmynd að framkvæmd
Fræðsluefni UPLIFT er sérstaklega ætlað litlum og meðalstórum ferðaþjónustufyrirtækjum, kennurum og leiðbeinendum, nemendum og öðrum hagaðilum. Efnið sýnir hvernig nýta má frásagnir og gagnvirka tækni til að skapa nýja upplifun í ferðaþjónustu. Áhersla er lögð á að slíkar lausnir þurfi hvorki að kalla á dýran búnað né flókna tækni. Þvert á móti er hægt að byrja smátt og nýta þá þekkingu og þau verkfæri sem þegar eru til staðar.
Meðal nýs fræðsluefnis eru fjögur stutt og hagnýt fræðslumyndbönd þar sem meðal annars er fjallað um VR, AR og XR, skapandi notkun QR-kóða og markaðssetningu.
Einnig hafa verið þróaðar fjórar vinnustofur og fjórar verkfærakistur sem leiða notendur frá fyrstu hugmynd að raunhæfri framkvæmd. Þá hafa verið útbúnar sérstakar leiðbeiningar fyrir kennara og leiðbeinendur um hvernig nýta megi efni UPLIFT í kennslu og þjálfun.
Fræðsluefnið byggir á rannsóknar- og þróunarvinnu undanfarinna tveggja ára, meðal annars rannsóknum á góðum starfsháttum og vinnustofum sem haldnar voru á Íslandi, Írlandi, Litháen og Slóveníu.
Tveggja ára starf dregið saman í Maribor
Lokaráðstefna UPLIFT, Unlocking the Future of Immersive Literary and Film Tourism, fór fram í Maribor í Slóveníu 8. september. Ráðstefnan var vettvangur til að draga saman það fjölbreytta starf sem farið hefur fram innan verkefnisins undanfarin tvö ár, kynna afrakstur þess og vekja athygli á þeim tækifærum sem felast í tengingu frásagna, tækni og ferðaþjónustu.
Á ráðstefnunni komu saman sérfræðingar, rannsakendur og hagaðilar úr ferðaþjónustu, bæði á staðnum og á netinu. Tveir aðalfyrirlesarar, Dr. Noëlle O’Connor frá Technological University of the Shannon og Prof. Dr. Jasna Potočnik Topler frá University of Maribor, fjölluðu um framtíð bókmennta- og kvikmyndaferðaþjónustu og hvernig nýta megi bókmenntaarf og frásagnir til að skapa innihaldsríka upplifun fyrir gesti.
Einnig var miðlað reynslu og hugmyndum frá vinnustofum UPLIFT í samstarfslöndunum fjórum. Yixuan Lu, doktorsnemi í safnafræði við Háskóla Íslands, tók þátt fyrir hönd Íslands og sagði frá reynslu sinni af vinnustofunni sem haldin var hér á landi. Ráðstefnunni lauk með alþjóðlegum pallborðsumræðum um framtíð gagnvirkrar ferðaþjónustu í Evrópu.
Vera Vilhjálmsdóttir, sérfræðingur RMF, tók þátt í ráðstefnunni fyrir hönd rannsóknamiðstöðvarinnar. Hún bauð þátttakendur velkomna og kynnti UPLIFT, markmið þess og helstu áherslur. Jafnframt tók hún þátt í pallborðsumræðum um framtíð gagnvirkrar tækni og upplifunar í evrópskri ferðaþjónustu.
Lokaráðstefnan markaði þannig viðeigandi lok á tveggja ára samstarfi UPLIFT. Þótt verkefninu sjálfu sé að ljúka verður fræðsluefnið áfram öllum aðgengilegt og getur nýst ferðaþjónustuaðilum, kennurum, nemendum og öðrum hagaðilum við að þróa nýjar hugmyndir og skapa fjölbreyttari upplifun fyrir gesti með hjálp frásagna og gagnvirkrar tækni.
