Nýtt sérhefti Nordicum-Mediterraneum um menningarlæsi og afnýlenduvæðingu

Danski heimspekingurinn Carsten Friberg gestaritstjóri
Nýtt sérhefti Nordicum-Mediterraneum um menningarlæsi og afnýlenduvæðingu

Nýtt sérhefti af Nordicum-Mediterraneum: Icelandic E-Journal of Nordic and Mediterranean Studies er komið út. Heftið fjallar um afnýlenduvæðingu (e. decoloniality), gagnrýnið menningarlæsi og hvernig listir og menntun geta skapað rými fyrir fjölbreyttari sjónarmið og menningarlega tjáningu.

Danski heimspekingurinn Carsten Friberg er gestaritstjóri að þessu sinni og er hann dósent við Syddansk Universitet. Heftið á rætur að rekja til evrópska rannsóknaverkefnisins EXPECT_Art – EXPloring and Educating Cultural literacy Through ART, sem Friberg tekur þátt í.

Markmið EXPECT_Art er meðal annars að rannsaka hindranir og tækifæri til að efla gagnrýnið menningarlæsi með listkennslu, námi í gegnum listir og notkun lista í fjölbreyttu menntunarstarfi í Evrópu.

Hver er ráðandi menning samfélagsins?

Í inngangi heftisins bendir Friberg á að gagnrýnið menningarlæsi feli í sér að horfa lengra en til þekkingar á ráðandi menningu samfélagsins. Þess í stað sé lögð áhersla á að viðurkenna fjölbreyttar leiðir fólks til að tjá reynslu sína, viðhorf og sýn á lífið. Slík tjáning geti meðal annars birst í tungumáli, listum, menningarlegum fyrirbærum, líkamstjáningu og því hvernig félagslegt og efnislegt umhverfi er mótað.

Fjallað er um afnýlenduvæðingu með gagnrýnum augum á valdatengsl og þau kerfi sem hafa áhrif á hvaða þekking, menning og sjónarmið fá vægi. Í heftinu er nálguninni beitt á ólík viðfangsefni, meðal annars skólastarf og námskrár, myndræna tjáningu, safna- og sýningarstarf, menningararf og listrænt og samfélagslegt starf.

Sérheftið inniheldur sex fræðigreinar auk inngangs ritstjóra og var kallað eftir greinum frá fræðafólki sem vinnur með afnýlenduvæðingu frá ólíkum sjónarhornum.

Nordicum-Mediterraneum er rafrænt fræðitímarit gefið út á netinu í opnum aðgangi í samvinnu Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands. Tímaritið er alþjóðlegur, þver- og fjölfræðilegur vettvangur fyrir kynningu, umræðu og miðlun hugmynda, rannsókna og fræða sem fjalla um málefni Miðjarðarhafs og Norðurlanda.

Smelltu hér til að lesa Nordicum-Mediterraneum.