Öflug þátttaka Akureyringa á Hringborði norðurslóða

Fjölmenn sendinefnd fræðafólks og sérfræðinga frá Norðurslóðamiðstöð Íslands á Akureyri tók þátt í einum stærsta alþjóðlega samráðsvettvangi um málefni norðurslóða
Öflug þátttaka Akureyringa á Hringborði norðurslóða

Fjölmenn sendinefnd fræðafólks og sérfræðinga sem tilheyra Norðurslóðamiðstöð Íslands tók þátt á Hringborði norðurslóða (Arctic Circle Assembly) sem fram fór í Hörpu dagana 8.–10. október. Ráðstefnan er einn stærsti alþjóðlegi samráðsvettvangurinn um málefni norðurslóða og dregur árlega til sín fjölda þátttakenda úr stjórnsýslu, vísindum, atvinnulífi og félagasamtökum, auk fulltrúa frumbyggjaþjóða á norðurslóðum.

Í ár komu rúmlega 2.000 þátttakendur víðs vegar að úr heiminum saman í Hörpu til að ræða málefni norðurslóða í yfir 200 málstofum og pallborðsumræðum.

Öflugt þekkingarsamfélag á Akureyri

Á háskólasvæðinu á Akureyri er Norðurslóðamiðstöð Íslands, öflug þekkingarmiðstöð um málefni norðurslóða þar sem fjölbreyttar innlendar og alþjóðlegar stofnanir á sviði rannsókna, menntunar, stefnumótunar og samstarfs hafa starfstöð.

Kynningarbás HA á Arctic Circle

Fulltrúar Háskólans á Akureyri, Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar við HA (SVS), Norðurslóðanets Íslands, Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC) og vinnuhópa Norðurskautsráðsins, CAFF og PAME, tóku virkan þátt í fjölmörgum málstofum ráðstefnunnar. Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanetið og IASC voru jafnframt með kynningarbása á sýningarsvæði ráðstefnunnar.

Málefni norðurslóða kalla á þverfaglega nálgun og endurspeglaði þátttaka fræðafólks og sérfræðinga Norðurslóðamiðstöðvar þá víðtæku þekkingu sem einkennir þekkingarsamfélagið á Akureyri.

Viðfangsefnin voru fjölbreytt og spönnuðu meðal annars loftslagsbreytingar, líffræðilega fjölbreytni, bráðnun jökla, haffræði og siglingar, auk alþjóðastjórnmála, efnahagslegs og félagslegs ójafnaðar, jafnréttis kynjanna, ferðaþjónustu, starfsferils vísindafólks og undirbúnings fimmta alþjóðlega heimskautaársins.

Frá hafstraumum til líffræðilegrar fjölbreytni

Steingrímur í pallborði

Meðal fjölmargra framlaga var erindi Steingríms Jónssonar, prófessors við HA, um veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) í málstofu sem skipulögð var af utanríkisráðuneytum Íslands, Hollands og Bretlands.

AMOC var eitt af lykilviðfangsefnum ráðstefnunnar í ár en nýlegar vísindarannsóknir benda til þess að auknar líkur séuá verulegri veikingu hringrásarinnar. Slík þróun gæti haft sérstaklega mikil áhrif á Ísland. Í erindi sínu fjallaði Steingrímur um mögulegar afleiðingar fyrir landið og lagði áherslu á mikilvægi samræmdra alþjóðlegra mælinga og vöktunar, auk þess sem hann undirstrikaði nauðsyn þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þá kallaði hann eftir aukinni menntun á sviði haffræði á Íslandi.

Tom Barry, forseti Hug- og félagsvísindasviðs HA, tók þátt í málstofu um ráðstefnuna Arctic Biodiversity Summit sem fram fer í Nuuk á Grænlandi næsta vor. Ráðstefnan er hluti af formennskuáætlun Konungsríkisins Danmerkur, sem samanstendur af Grænlandi, Færeyjum og Danmörku. Tom vinnur um þessar mundir með fjölmörgum samstarfsaðilum að undirbúningi þessa mikilvæga alþjóðlega viðburðar.

Ójöfnuður, siglingaleiðir og alþjóðalög

Joan Nymand Larsen, rannsóknastjóri SVS og prófessor við HA, flutti erindi í málstofunni An Unequal Arctic: Economic Development, Wealth & Inequality á vegum WAGE-rannsóknarsamstarfsins.

Joan leiðir tilviksrannsókn innan WAGE-samstarfsins sem beinist að félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði á Suður-Grænlandi. Málstofan var skipulögð af Université Laval í Kanada, sem jafnframt leiðir alþjóðlegt rannsóknarteymi WAGE, en SVS er meðal samstarfsaðila verkefnisins.

Romain í pallborði

Romain Chuffart, sérfræðingur hjá SVS og Nansen-prófessor við HA, fjallaði meðal annars um norðausturleiðina (Northern Sea Route, NSR) út frá sjónarhorni alþjóðalaga í málstofunni Northern Sea Route: Between Limited Use & Power Politics.

Siglingaleiðin, sem liggur norður með strönd Rússlands, hefur vakið vaxandi athygli á tímum bráðnandi hafíss og aukinnar spennu á alþjóðavettvangi.
Sara Fusco, aðjúnkt við Lagadeild HA, sem nýverið lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Lapplandi, flutti erindi í málstofunni Net Zero or Zero Trust: Climate Breakdown, Fear, Cooperation. Sara tók einnig þátt í hringborðsumræðum þar sem málefni norðurslóða voru rædd út frá sjónarhorni ólíkra kynslóða.

Alþjóðleg tengsl styrkt utan ráðstefnusala

Hringborð norðurslóða snýst þó ekki eingöngu um málstofur og fyrirlestra. Ráðstefnan er jafnframt mikilvægur vettvangur til að hitta samstarfsfólk, vini og kunningja víðs vegar að úr heiminum, efla tengsl og leggja grunn að nýju samstarfi.

Stúdentar HA sjálfboðaliðar á Arctic Circle

Samhliða formlegri dagskrá í Hörpu fóru fram fjölmargir hliðarviðburðir, fundir og móttökur. Fulltrúar HA sóttu meðal annars móttöku á vegum Norðurskautsráðsins þar sem 30 ára samstarfi var fagnað með tónlist og veitingum. Þeir heimsóttu einnig ísbrjót sem lá við bryggju í gömlu höfninni í Reykjavík og fóru í veislu grænlensku sendiskrifstofunnar á Íslandi.

Ráðstefnunni lauk með móttöku í boði ríkisstjóra Alaska þar sem hljómsveitin Pamyua, skipuð tónlistarfólki af Yup’ik-frumbyggjaættum í Alaska, hélt tónleika.

Þátttaka fræðafólks og sérfræðinga frá Akureyri á Hringborði norðurslóða undirstrikar mikilvægi þess öfluga þekkingarsamfélags sem byggst hefur upp á háskólasvæðinu og hlutverk þess í alþjóðlegri umræðu, rannsóknum og samstarfi um framtíð norðurslóða.