Umsóknarfrestur er til 20. júní
Opið er fyrir umsóknir í diplómanám fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfir. Um er að ræða 60 eininga tveggja ára nám fyrir fólk með þroskahömlun á grunnstigi háskólanáms. Námið hófst sem þróunarverkefni við HA og er mikilvægt skref í að auka aðgengi að háskólanámi.
„Fyrstu stúdentarnir hafa nú lokið sínu fyrra námsári og það hefur gengið einstaklega vel. Við erum í skýjunum yfir þeim árangri sem náðst hefur og þeim framförum sem stúdentarnir hafa sýnt. Á þessu fyrsta ári hef ég orðið vitni að miklum framförum, aukinni færni, sjálfstrausti og valdeflingu hjá hópnum. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hvernig stúdentarnir hafa vaxið bæði námslega og persónulega og tekið stór skref í átt að markmiðum sínum,“ segir Sigríður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri námsins.
Um námið
Við brautskráningu fá stúdentar starfstengda diplómu sem staðfestir námskeið og starfsnám. Einnig mun fylgja með ítarlegur viðauki sem tilgreinir þá hæfni sem viðkomandi býr yfir.
Markmið námsins er að efla menntun, sjálfstæði og atvinnuþátttöku fólks með þroskahömlun og stuðla að samfélagi þar sem allir fá tækifæri til að halda áfram að læra og taka virkan þátt.
Kennslufyrirkomulag
Námið er blanda af lotubundnu námi, fjarnámi og starfsnámi. Þau sem hljóta inntöku í námið stunda háskólanámið samhliða öðrum stúdentum og eru hæfniviðmið og námsmat einstaklingsmiðuð.

Stúdentar fá einnig stuðning frá háskólasamfélaginu og taka þátt í félagslífi og námsumhverfi Háskólans á Akureyri.
Umsækjendur geta valið á milli tveggja námslína. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á heitið:
Við inntöku er sérstaklega tekið mið af
- Framhaldsskólamenntun og/eða símenntun
- Áhuga á náminu og starfi á viðkomandi sviði
- Starfsreynsla er kostur
Umsókn skal fylgja
- Ferilmappa með verkefnum, listaverkum eða öðrum verkum sem sýna styrkleika umsækjanda
- Tvær til þrjár umsagnir frá fyrri kennara, atvinnuveitanda og/eða ráðgjöfum. Umsagnaraðilar eiga að senda umsagnir beint á verkefnisstjóra diplómanámsins á netfangið siggag@unak.is
Umsóknarfrestur og frekari upplýsingar:
- Þau sem þurfa aðstoð við daglegar athafnir, lestur eða skrift, þurfa að sækja námið með sínum persónulegu aðstoðarmönnum eða talsmönnum (Notendastýrð persónuleg aðstoð).
- Fjöldatakmörkun eru fjórir stúdentar og verða umsækjendur boðaðir í viðtal.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní
Smelltu hér til að sækja um
Frekari upplýsingar veitir Sigríður Guðmundsdóttir verkefnisstjóri námslínunnar, siggag@unak.is