PCC BakkiSilicon auglýsti á dögunum eftir áhugasömu fólki til að styrkja til náms í iðnaðar- og orkutæknifræði sem verður kennd í fyrsta skipti í haust við Háskólann á Akureyri í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.
Fyrirtækið mun greiða hluta námsgjalda, bjóða upp á starfsreynslu/sumarstarf á meðan á námi stendur, sem og tækifæri til að nýta fyrirtækið og innviði þess til hagnýtra verkefna í náminu. Skilyrði er að umsækjendur séu með lögheimili í Norðurþingi, Þingeyjarsveit, Tjörneshreppi eða Langanesbyggð. Marella Steinsdóttir, mannauðsstjóri hjá PCC BakkaSilicon, segir að fyrirtækið hafi séð tækifæri til þess að efla samfélagið til framtíðar með því að taka þetta skref. Þá sé fyrirtækið einnig að sýna að það þurfi ekki endilega að fara langt til að mennta sig heldur hafi Norðausturlandið upp á ýmis tækifæri að bjóða.
„Við teljum þetta einstakt tækifæri fyrir þann eða þá aðila sem hljóta styrkinn til að kynnast fyrirtæki í okkar iðnaði frá þessari hlið. Það yrði frábært veganesti út í atvinnulífið fyrir styrkhafa að hafa aðgang að okkar innviðum á meðan á náminu stendur til að fá betri skilning á því til dæmis hvernig námið muni nýtast eftir útskrift. Þá séu einnig líkur á því að með þessu móti muni einstaklingar finna strax eitthvað áhugasvið sem viðkomandi myndi vilja einblína á í náminu eða að námi loknu. Fyrirtækið fái svo kannski í bónus framtíðarstarfsfólk ef allt gengur vel, þótt engar kvaðir séu um slíkt,“ segir Marella.
Áhugasamir einstaklingar sem falla undir skilyrði styrksins geta sett sig í samband við Marellu í gegnum netfangið marella.steinsdottir@pcc.is. „Við bindum vonir við það að fá til okkar styrkhafa sem nýti tækifærið til fulls, fái hér hjá PCC BakkaSilicon og í náminu, reynslu sem þeir muni búa að til frambúðar og njóti vegferðarinnar. Við hlökkum mikið til samstarfsins og vonum að fólk grípi tækifærið,“ segir Marella að lokum.