Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á rannsakendum við Háskólann á Akureyri. Vaka Valsdóttir, lektor við Sálfræðideild, er vísindamanneskja nóvembermánaðar.
Vaka hefur rannsakað hugræna öldrun og hefur áhuga á því hvernig hægt er að grípa fyrr inn í heilsufarsvanda. Leið hennar í sálfræðina lá um iðnaðarverkfræði og taugavísindi.
Sálfræðin kom á óvart
„Ég er fædd og uppalin í Árbænum í Reykjavík, en ég hef líka búið í Ástralíu, þar sem ég var skiptinemi sem unglingur, og í Bretlandi á meðan ég var í meistaranámi.
Leið mín í sálfræðina var ekki bein. Eftir menntaskóla valdi ég iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Það var praktískt val og að einhverju leyti var ég að fylgja straumnum. Námið nýtist mér enn á hverjum degi, en þegar kom að meistaranámi sá ég mig ekki fyrir mér í hefðbundnum verkfræðistörfum.
Þegar ég leit inn á við gerði ég mér grein fyrir því að sálfræði vakti áhuga minn, sem kom mér sjálfri örlítið á óvart því ég hafði ekki séð þann starfsvettvang fyrir mér þegar ég var yngri. Ég ákvað að gefa sálfræðinni tækifæri, skráði mig í nám við Háskólann í Reykjavík og heillaðist strax á fyrstu önn af tauga- og lífeðlisfræðilegri sálfræði og tölfræðinni sem fræðigreininni fylgir. Þaðan lá leiðin í meistaranám í taugavísindum við Cambridge-háskóla og síðan í doktorsnám í taugasálfræði við HR, sem ég lauk árið 2024.
Meðfram náminu kenndi ég og starfaði hjá heilbrigðistæknifyrirtækjunum Sidekick Health og Nox Medical. Það var svo í seinna fæðingarorlofinu mínu, haustið 2025, sem ég fann sterkt að mig langaði aftur inn í akademíuna. Ég hef alltaf haft gaman af kennslu og í fyrirtækjunum sem ég starfaði hjá fannst mér erfitt hversu hratt áherslur rannsóknanna gátu breyst. Akademíska frelsið heillaði mig, því þar ræð ég sjálf hvenær tímabært er að breyta um stefnu.
Vorið 2026 hóf Vaka nýdoktorsverkefni við Háskólann í Reykjavík í FLIKK-verkefninu, sem snýr að netmeðferð fyrir foreldra barna með kvíða. Hún er enn samstarfsaðili að verkefninu en hóf störf við Háskólann á Akureyri í ágúst sama ár.
Lýðheilsan sem rauður þráður
„Doktorsverkefnið mitt fjallaði um hugræna öldrun frá taugasálfræðilegu sjónarhorni. Ég notaði AGES-Reykjavik gagnasafnið frá Hjartavernd til að greina þá þætti sem stuðla að hugrænni öldrun og meta líkur á þróun heilabilunar. Verkefnið snerist að miklu leyti um gagnagreiningu. Þar nýttist verkfræðibakgrunnurinn mér vel, því auk hefðbundinnar tölfræði prófaði ég vélnámsaðferðir og bar saman ólíkar greiningaraðferðir. Í störfum mínum hjá heilbrigðistæknifyrirtækjum vann ég mikið með lífsstílstengda sjúkdóma. Ef ég lít til baka hefur lýðheilsa verið rauði þráðurinn í gegnum bæði nám og störf.“
Við erum föst í því mynstri að slökkva elda
Vaka hefur sérstakan áhuga á því hvernig hægt er að grípa fyrr inn í heilsufarsvanda, áður en hann verður stór, og hvers vegna það reynist heilbrigðiskerfinu oft svo erfitt.
„Það á bæði við um heilabilun, sem ég hef rannsakað frá doktorsnáminu, og kvíða barna, en FLIKK-verkefnið er dæmi um snemmtæka íhlutun á því sviði. Ég hef líka mikinn áhuga á aðferðafræðinni sjálfri og því hvernig hægt er að nýta aðferðir úr verkfræði, eins og vélnám og hermilíkön, til að svara sálfræðilegum og samfélagslegum spurningum.
Það sem mér finnst brýnast er að skilja hvers vegna heilbrigðiskerfi bregðast almennt svo seint við lífsstílstengdum sjúkdómum. Ég á ekki við einstaka heilbrigðisstarfsmenn, heldur kerfisbundinn vanda. Við erum föst í því mynstri að slökkva elda í stað þess að koma í veg fyrir að þeir kvikni.
Heilabilun er gott dæmi. Talið er að koma megi í veg fyrir eða seinka allt að 45% tilfella með því að vinna með áhættuþætti sem hægt er að hafa áhrif á, og rannsóknir hafa sýnt að fjölþættar lífsstílsíhlutanir geta viðhaldið og jafnvel bætt vitræna getu einstaklinga í áhættuhópi fyrir heilabilun. Vandinn felst því ekki lengur fyrst og fremst í skorti á þekkingu, heldur í innleiðingu hennar.
Við vitum nokkuð vel hvaða hindranir standa í veginum, en minna um hvernig þær spila saman og viðhalda hver annarri. Með betri skilningi á því væri hægt að móta heilbrigðisstefnu sem leggur meiri áherslu á að draga úr líkum á sjúkdómum í stað þess að bregðast við þeim þegar þeir eru komnir fram.“
Verkfæri fyrir framtíðina
„Á þessari önn kenni ég hluta af inngangsnámskeiði í sálfræði á fyrsta ári grunnnámsins og eftir áramót kenni ég heilsusálfræði. Áður kenndi ég ýmis námskeið í grunnnámi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík, bæði meðfram doktorsnáminu og eftir það, meðal annars í rannsóknaraðferðum og tölfræði.
Ég hlakka sérstaklega til að kenna heilsusálfræði, því hún tengist beint því sem ég hef mestan áhuga á í rannsóknum: hvernig hegðun okkar og lífshættir hafa áhrif á heilsuna og af hverju okkur reynist svo erfitt að breyta hegðun þegar afleiðingarnar koma ekki í ljós fyrr en mörgum árum síðar. Það er gaman að geta tengt kennsluna við eigin rannsóknir og sýnt nemendum hvernig sálfræðin getur stuðlað að bættri lýðheilsu.“
Tölfræðikennslan hefur kennt Vöku að ein stærsta áskorunin felist oft í sjálfstrausti nemenda.
„Marga sálfræðinema skortir sjálfstraust þegar kemur að raungreinum og hafa því tilhneigingu til að reyna frekar að komast í gegnum tölfræðina en að skilja hana. Mér finnst spennandi að vekja áhuga þeirra og sýna þeim að hægt er að greina gögn á fleiri en einn hátt. Fyrst og fremst vil ég kenna nemendum gagnrýna hugsun og senda þá út í lífið með verkfæri sem nýtast þeim, sama hvaða starfsvettvang þeir velja.“
Prjónarnir eða fjölskyldun með í för
„Sem krakki æfði ég fimleika og handbolta og mér finnst enn nauðsynlegt að hreyfa mig. Ég hef líka gaman af því að ferðast og prjóna mikið. Við maðurinn minn eigum fimm ára son og tveggja ára dóttur og er fjölskyldan því mitt aðaláhugamál þessi misserin.“
Við þökkum Vöku samtalið og kveðjum hana þar sem hún er kannski að velta fyrir sér hvernig megi grípa fyrr inn í heilsufarsvanda, með prjónana í höndunum eða á ferð með fjölskyldunni.