Raddir frá Akureyri á 20 málstofum á Arctic Circle

„Á Akureyri er afar mikil samþjöppun sérþekkingar á málefnum norðurslóða“
Raddir frá Akureyri á 20 málstofum á Arctic Circle

Vísindafólk með starfsstöð á svæði Háskólans á Akureyri (HA) tekur þátt í 20 málstofum á Arctic Circle Assembly sem fram fer í Hörpu í Reykjavík dagana 8.–10. október. Starfsfólk Háskólans á Akureyri tekur til máls í 13 þeirra og kemur að skipulagningu fimm málstofa. Tuttugu stúdentar frá háskólanum sinna jafnframt sjálfboðaliðastörfum á ráðstefnunni, en þar koma saman yfir 2.000 þátttakendur víðs vegar að úr heiminum.

„Á Akureyri er afar mikil samþjöppun sérþekkingar á málefnum norðurslóða. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og annað starfsfólk háskólans vinnur náið með samstarfsaðilum okkar á háskólasvæðinu, þar á meðal IASC, vinnuhópum Norðurskautsráðsins CAFF og PAME, Rannsóknamiðstöð ferðamála og Norðurslóðaneti Íslands. Við leggjum til rannsóknir og þekkingu sem geta nýst við stefnumótun og styrkt samstarf á norðurslóðum. Arctic Circle er mikilvægur vettvangur til að tengja þessa sérþekkingu við þá sem taka þátt í að móta framtíð svæðisins,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.

Þekking úr norðri inn í stefnumótun á norðurslóðum

Málstofur Norðurslóðamiðstöðvar Íslands á Arctic Circle í ár taka til fjölmargra lykilviðfangsefna norðurslóða: líffræðilegrar fjölbreytni og votlendis, heilbrigðismála, jökla og hafstrauma, siglinga, geópólitíkur, ójöfnuðar, ferðaþjónustu, jafnréttis kynjanna, starfsferils vísindafólks og undirbúnings fimmta alþjóðlega heimskautaársins. Rauði þráðurinn er að koma rannsóknum og þekkingu frá norðurslóðum til þeirra sem móta stefnu um málefni svæðisins.

Á háskólasvæðinu á Akureyri er Norðurslóðamiðstöð Íslands, klasi innlendra og alþjóðlegra stofnana sem starfa að málefnum norðurslóða. Auk þátttöku fulltrúa frá HA og SVS taka fulltrúar frá Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndinni (IASC), vinnuhópum Norðurskautsráðsins PAME og CAFF og Norðurslóðaneti Íslands þátt í fjölda málstofa. Saman sýna þær hversu stór hluti sérþekkingar Íslands á norðurslóðum er saman kominn á einu háskólasvæði.

Fjórir rannsakendur frá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri taka þátt í dagskránni. Romain Chuffart tekur til máls í fimm málstofum um stjórnarhætti, geopólitík, starfsferil í rannsóknum og samstarf Íslands og Japans. Joan Nymand Larsen fjallar um ójöfnuð og ferðaþjónustu, Jón Haukur Ingimundarson ræðir samfélög á norðurslóðum og félagslega sjálfbærni og Karl Karlsson fjallar um stjórnarhætti út frá hugmyndafræði One Health.

Einnig eru frá HA eftirfarandi þátttakendur í dagskránni: Tom Barry sem skipuleggur ásamt fleirum þrjár málstofur um líffræðilega fjölbreytni, votlendi og stjórnun málefna tengdum jöklum ásamt því að vera með erindi í þeim. Steingrímur Jónsson tekur þátt í málstofu þar sem rætt er hvort Atlantshafshringrásin (Atlantic Meridional Overturning Circulation, AMOC) sé að nálgast óafturkræf tímamót og Sara Fusco fjallar um loftslagshrun, ótta og samvinnu.

Frá Norðurslóðamiðstöð Íslands tekur Gerlis Fugmann hjá IASC þátt í fjórum málstofum um alþjóðlega heimskautaárið og forgangsröðun í rannsóknum á norðurslóðum, en Hjalti Hreinsson hjá PAME tekur þátt í tveimur málstofum um siglingar á norðurslóðum. Fyrir hönd CAFF fjallar Snorri Sigurðsson um Arctic Biodiversity Summit 2027 og Kári Fannar Lárusson um votlendi á Írlandi og Íslandi.

Komdu og hittu fólkið okkar


Helga Guðrún hjá SVS og Rachael rannsóknarstjóri HA taka vel á móti ykkur
Á meðan Arctic Circle Assembly stendur munu Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og IASC einnig vera með kynningarbása á sýningarsvæði ráðstefnunnar. Háskólinn á Akureyri verður þar með upplýsingabás þar sem þátttakendur geta kynnt sér rannsóknir og kennslu háskólans á sviði brýnna málefna norðurslóða, þar á meðal starfsemi Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og hið einstaka meistaranám í heimskautarétti.

Smelltu hér til að sjá málstofur með þátttakendum frá háskólanum

Smelltu hér til að sjá dagskrá Arctic Circle í heild sinni