Um 40 gestir mættu í Opið hús í Háskólanum á Akureyri mánudaginn 5. október þar sem rætt var um netöryggi, netsvik og upplýsingaóreiðu. Fleiri fylgdust auk þess með í streymi. Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í félagslegu netöryggi og miðlalæsi, leiddi fræðsluna og skapaðist góð umræða meðal gesta um þær fjölbreyttu hættur sem geta mætt okkur í stafrænu umhverfi.
Undir yfirskriftinni Rauðu flöggin fór Skúli meðal annars yfir netveiðar, ástarsvik og fjársvik á netinu, auk falsfrétta og upplýsingaóreiðu. Einnig var rætt um áhrif samfélagsmiðla, algóritma og gervigreindar á það efni og þær upplýsingar sem birtast okkur á netinu.
Svindlarar nýta sér traust og mannleg samskipti
Netsvik geta tekið á sig fjölbreyttar myndir en eiga það sameiginlegt að reynt er að blekkja fólk til að láta af hendi upplýsingar, peninga eða aðgang að reikningum. Svindlarar geta meðal annars þóst vera fyrirtæki eða stofnanir sem fólk þekkir og treystir eða byggt upp persónulegt samband við einstaklinga yfir lengri tíma.
Fræðslan snerist því ekki síður um að þekkja viðvörunarmerkin og temja sér gagnrýna hugsun en um ákveðnar tegundir svika. Markmiðið er að efla upplýsinga- og miðlalæsi og gera fólk að öruggari, gagnrýnni og ábyrgari notendum í síbreytilegu stafrænu umhverfi.
Góðar umræður sköpuðust að erindinu loknu og ljóst að málefnið snertir marga enda netið orðið stór hluti af daglegu lífi fólks á öllum aldri.
Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár – Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra.
