Samskipti lögreglu á vettvangi

Íslenskir lögreglunemar tóku þátt í alþjóðlegu námskeiði
Samskipti lögreglu á vettvangi

Dagana 17.–23. maí tóku fimm íslenskir lögreglunemar frá Háskólanum á Akureyri þátt í alþjóðlega námskeiðinu Operational Communication við Norska lögregluháskólann í Ósló.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að samþætta fræðilega þekkingu og verklegar æfingar í samskiptum lögreglu á vettvangi, þar sem megináhersla er lögð á réttláta málsmeðferð (procedural justice). Auk íslensku nemendanna sóttu námskeiðið lögreglunemar frá Noregi, Svíþjóð, Hollandi, Þýskalandi og Úkraínu.

Námskeiðið var nú haldið í fimmta sinn en það hefur verið þróað í samstarfi kennara í lögreglunámi frá þátttökulöndunum. Sérstaða þess felst í nánu samstarfi fræðimanna og lögreglumanna sem sameina fræðilega þekkingu og reynslu úr lögreglustarfi við þróun og kennslu námskeiðsins.

Íslenska hópinn leiddu Dr. Eyrún Eyþórsdóttir, lektor í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri, og Hlynur Gíslason, lögreglufulltrúi og kennari við Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar. Eyrún hefur tekið þátt í þróun námskeiðsins og kennt á því frá upphafi. Hún leggur sérstaka áherslu á samskipti í fjölbreyttu samfélagi þar sem lögreglunemar þjálfast í að vera meðvitaðir um eigin viðhorf, ómeðvitaða hlutdrægni og þær ályktanir sem þeir kunna að draga um aðra.

Þátttaka íslenskra lögreglunema í námskeiðinu veitir þeim tækifæri til að kynnast hagnýtum rannsóknum og aðferðum á sviði samskipta lögreglu, auk þess að eiga samstarf við nemendur og kennara frá þátttökulöndum.