Samstarf HA og Tongji University styrkt með nýjum samningi

Sendinefnd frá Tongji University í Shanghai heimsótti HA á dögunum
Samstarf HA og Tongji University styrkt með nýjum samningi

Háskólinn á Akureyri tók á móti sendinefnd frá Tongji University í Shanghai í Kína. Í hópnum voru tveir kennarar og ellefu stúdentar sem kynntu sér starfsemi háskólans og ýmis alþjóðleg samstarfsverkefni á Norðurslóðum.

Kynntust alþjóðlegu samstarfi á Norðurslóðum

Heimsóknin hófst með ávarpi Áslaugar Ásgeirsdóttur, rektors HA. Dagskráin innihélt jafnframt kynningar frá fulltrúum HA, PAME (Protection of the Arctic Marine Environment), Alþjóðlegu vísindanefndinni um Norðurslóðir (IASC) og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar við HA.

Nýr samstarfssamningur undirritaður

Hápunktur heimsóknarinnar var undirritun samstarfssamnings (Memorandum of Understanding) milli Háskólans á Akureyri og Tongji University. Samningurinn leggur grunn að auknu samstarfi háskólanna á sviði kennslu, rannsókna og alþjóðlegra tengsla og felur meðal annars í sér möguleika á stúdenta- og starfsmannaskiptum.

Með samstarfinu styrkir HA tengsl sín við eitt af fremstu háskólasamfélögum Kína og opnar ný tækifæri fyrir stúdenta, kennara og rannsakendur beggja stofnana.