Samstarfssamningur undirritaður við Fab Lab

Háskólinn og Drift fara í formlegt samstarf við Fab Lab
Á myndinni má sjá Benedikt Barðason og Svövu Björk Ólafsdóttur við undirritun
Á myndinni má sjá Benedikt Barðason og Svövu Björk Ólafsdóttur við undirritun

Í dag voru undirritaðir samstarfssamningar milli Háskólans á Akureyri og Drift EA við Fab Lab Akureyri, sem marka mikilvægt skref í átt að enn nánara samstarfi um nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og uppbyggingu öflugs nýsköpunarumhverfis á Norðurlandi.

Samstarfið er liður í sameiginlegri sýn að því að styrkja tengsl háskólasamfélagsins við atvinnulíf og nýsköpunarstarf á svæðinu. Með aukinni samvinnu skapast tækifæri fyrir nemendur, starfsfólk og frumkvöðla til að þróa hugmyndir, byggja upp verkefni og skapa verðmæti í samfélaginu.

Hluti af samstarfinu felur í sér að Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri Háskólans á Akureyri, tekur sæti í stjórn Fabeyjar, hollvinasamtaka Fab Lab Akureyrar. Svava hefur víðtæka reynslu af nýsköpunar- og þróunarverkefnum og mun þátttaka hennar styrkja enn frekar tengsl Háskólans við nýsköpunarvistkerfi svæðisins.

„Það er afar ánægjulegt að efla samstarf við Fab Lab á þessum vettvangi. Nýsköpun verður sterkust þegar ólíkir aðilar vinna saman og deila þekkingu, reynslu og tengslaneti. Við hlökkum til að leggja okkar af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og nýsköpunarsamfélagsins í heild,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir.

Samstarfið skapar sterkan grunn

Fab Lab Akureyri er hluti af alþjóðlegu neti Fab Lab-smiðja og veitir aðgang að tækjum og aðstöðu fyrir stafræna framleiðslu, frumgerðasmíði og skapandi þróunarvinnu. Markmið starfseminnar er að styðja einstaklinga, fyrirtæki og skóla við að þróa hugmyndir sínar og umbreyta þeim í raunveruleg verkefni.

Með sameiginlegu átaki Háskólans á Akureyri, Drift EA og Fab Lab Akureyrar verður lagður enn sterkari grunnur að skapandi og framsæknu samfélagi á Norðurlandi.