Mari Kleist, rektor Ilisimatusarfik, háskólans í Grænlandi, kom á dögunum í heimsókn til okkar. Í heimsókninni ræddi hún við starfsfólk háskólans um námsform, gæðamál og þjónustu við stúdenta og starfsfólk.
Heimsóknin er liður í áframhaldandi samtali háskólans við grænlenska fulltrúa um háskólamenntun og möguleika á samstarfi. Í júní heimsótti Nivi Olsen, menntamálaráðherra Grænlands, háskólann ásamt sendinefnd og kynnti sér meðal annars sveigjanlegt nám og símenntun. Landfræðilegar aðstæður og dreifð byggð skapa sameiginleg viðfangsefni þar sem reynsla og þekking geta nýst þvert á landamæri.
„Við eigum margt sameiginlegt með grænlenskum samstarfsaðilum okkar þegar kemur að því að gera háskólamenntun aðgengilega og styðja við öflug samfélög á norðurslóðum. Með því að deila reynslu af námsformum, gæðastarfi og þjónustu getum við lært hvert af öðru og skapað ný tækifæri til samstarfs,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.
Mari og Áslaug heimsóttu einnig Stéttina á Húsavík þar sem meðal annars Þekkingarnet Þingeyinga og Hraðið, miðstöð nýsköpunar starfa. Þar tóku á móti þeim frá Þekkingarnetinu, Hildur Halldórsdóttir, forstöðumaður og Lilja B. Rögnvaldsdóttir, staðgengill forstöðumanns ásamt Stefáni Pétri Sólveigarsyni, forstöðumanni Hraðsins.
Tengsl við Grænland falla vel að áherslum háskólans á málefni norðurslóða og stöðu Akureyrar sem vettvangs þekkingar og alþjóðlegs samstarfs. Á Akureyri er Norðurslóðamiðstöð Íslands sem háskólinn er hluti af og það undirstrikar mikilvægi þess að efla samtal og tengsl við nágrannaþjóðir á norðurslóðum.