Stundakennari við Lagadeild varði doktorsritgerð þann 25. september 2026
Doktorsritgerð Söru ber heitið Environmental Constitutionalism in the Arctic: Indigenous Rights Recognition Through Environmental Restorative Justice. Þar skoðar hún hvernig stjórnskipunarréttur getur brugðist við umhverfisskaða sem hefur áhrif á frumbyggja á norðurslóðum. Rannsóknin byggir á samanburði á Kanada, Finnlandi og Noregi.
Ein af helstu niðurstöðum rannsóknarinnar er að það sé ekki nóg að réttindi frumbyggja séu viðurkennd í stjórnarskrá. Til að ná raunverulegum sáttum þurfi frumbyggjar einnig að hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir sem snerta þá, meðal annars um land, náttúruauðlindir og umhverfismál.
Í ritgerðinni notar Sara hugmyndina um endurreisnarréttlæti í umhverfismálum (environmental restorative justice) til að skoða þessi álitaefni. Niðurstöðurnar sýna að lög og stjórnarskrár geta styrkt réttindi frumbyggja, meðal annars með auknum rétti til þátttöku og með því að gera stjórnvöldum skylt að rökstyðja ákvarðanir sínar. Dómstólar geta þó ekki einir og sér breytt því hvernig vald og ábyrgð skiptast milli ríkja og frumbyggjasamfélaga.
Finnsk doktorsvörn
Doktorsvörnin fór fram við lagadeild Háskólans í Lapplandi í Rovaniemi og fylgdi hefðbundnu fyrirkomulagi finnskra doktorsvarna.
Prófessor Dorothée Cambou við Háskólann í Helsinki var andmælandi og Kamrul Hossain, rannsóknarprófessor við Háskólann í Lapplandi, stýrði athöfninni sem custos.

Í vörninni kynnti Sara helstu niðurstöður rannsóknarinnar og svaraði spurningum og athugasemdum frá andmælanda.
Í tilefni doktorsvarnarinnar fékk Sara að gjöf frá lagadeild Háskólans í Lapplandi hefðbundinn lapplenskan hníf, kuksa, sem er hefðbundinn viðarbolli, og minningarskjöld með nafni hennar og dagsetningu varnarinnar. Norðurslóðamiðstöðin og Northern Institute for Environmental and Minority Law (NIEM) heiðruðu einnig Söru, sem hefur verið tengd báðum stofnunum um árabil.

Deginum lauk með karonkka, hefðbundnum finnskum hátíðarkvöldverði sem haldinn er eftir doktorsvörn. Þar komu saman leiðbeinendur, samstarfsfólk, vinir og fjölskylda.
Frá stúdent í heimskautarétti til kennara
Sara er með meistaragráðu í samanburðarstjórnskipunarrétti frá Háskólanum í Flórens og LL.M.-gráðu í heimskautarétti frá Háskólanum á Akureyri. Síðar hóf hún doktorsnám við Háskólann í Lapplandi og lauk jafnframt framhaldsnámi til diplómu í mannöryggi og sjálfbærni við Italian Institute of International Political Studies.
Hún starfar nú sem stundakennari við Lagadeild Háskólans á Akureyri. Þar kennir hún meðal annars alþjóða- og samanburðarrétt og tekur þátt í starfi heimskautaréttarnámsins sem kennari og umsjónarmaður lokaritgerða.
Við óskum Söru innilega til hamingju með árangurinn og doktorsgráðuna.
Útgáfa
Sara Fusco (2026), Environmental Constitutionalism in the Arctic: Indigenous Rights Recognition Through Environmental Restorative Justice. Acta Electronica Universitatis Lapponiensis 441. University of Lapland. ISBN 978-952-337-564-2.
Smelltu hér til að nálgast rafræna útgáfu.