Sigríður Huld Jónsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri Náms- og kennsluþjónustusviðs. Sigríður Huld hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á stjórnun og námssamfélögum.
„Ég er afar stolt af því að hefja störf við Háskólann á Akureyri sem sviðsstjóri Náms- og kennsluþjónustusviðs, ekki síst sem fyrrverandi stúdent við skólann. Háskólar gegna sífellt mikilvægara hlutverki í að leiða breytingar framtíðarinnar með öflugri menntun, gagnrýnni hugsun, samfélagslegri ábyrgð og nýsköpun. Það er mér því mikilvægt að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum til þróunar kennslu og námsumhverfis á tímum hraðra breytinga. Ég hlakka til að vinna með stúdentum og starfsfólki að áframhaldandi uppbyggingu Háskólans á Akureyri,“ segir Sigríður Huld.
Fjölbreytt reynsla með áherslu á námssamfélag
Sigríður Huld sinnti starfi aðstoðarskólameistara VMA frá árinu 2006 og var skipuð skólameistari árið 2016. Því starfi sinnti hún til 1. ágúst 2025 og tók þá við stöðu verkefnastjóra hjá Háskólanum á Hólum og Háskóla Íslands þar sem hún hefur unnið að innleiðingu og undirbúningi að stofnun háskólasamstæðu skólanna. Hún lauk námi í hjúkrunarfræði frá HA árið 1998 og árið 2000 lauk hún kennsluréttindum frá sama skóla. Hún hefur nýlega lokið meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Áður en Sigríður Huld hóf störf í VMA starfaði hún sem hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri fræðslumála við FSA sem í dag er SAk og hefur einnig verið stundakennari við VMA og HA.
Samhliða störfum sínum hefur Sigríður Huld verið virk í samfélagslegum verkefnum meðal annars sem bæjarfulltrúi á Akureyri, setið í stjórn Skólameistarafélags Íslands, SÍMEY og Iðnmenntar. Þá hefur hún tekið að sér ýmis trúnaðarstörf og setið í ýmsum vinnuhópum varðandi innleiðingu og breytingar á námsskrá og skólasamfélaginu.
Við bjóðum Sigríði Huld hjartanlega velkomna í hóp HA-inga!
Nýtt skipurit Háskólans á Akureyri
Í ágúst tekur gildi nýtt skipurit Háskólans á Akureyri. Samkvæmt því mun stoðþjónusta og stjórnsýsla háskólans skiptast niður í fjögur stoðsvið. Eitt þeirra sviða er Náms- og kennsluþjónustusvið. Undir sviðið mun öll stoðþjónusta falla sem lýtur að þjónustu við stúdenta. Þannig sameinast alþjóðasvið, bókasafn, nemendaskrá, nemendaráðgjöf, kennsluráðgjöf og tækniþjónusta og halda áfram að þróa saman upplifun stúdenta við HA ásamt því að þjónusta starfsfólk.