Silja Jóhannesar Ástudóttir samskiptastjóri Háskólans á Akureyri

Tekur við starfi Katrínar Árnadóttur
Silja Jóhannesar Ástudóttir samskiptastjóri Háskólans á Akureyri

Silja Jóhannesar Ástudóttir hefur verið ráðin í starf samskiptastjóra Háskólans á Akureyri. Silja tekur við starfinu af Katrínu Árnadóttur, sem undanfarin sjö ár hefur verið forstöðumaður Markaðs- og kynningarmála og er hér því um nýtt starfsheiti að ræða með örlítið breyttum áherslum.

Silja er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og jafnframt hefur hún stundað nám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Undanfarin ár hefur Silja starfað sjálfstætt sem verkefnastjóri og ráðgjafi við einstaklinga og fyrirtæki er varðar stofnun fyrirtækja, fjármögnun, sölu, viðskiptaáætlanir, vöruþróun, markaðssetningu, styrkjaumsóknir og tengslanet. Hún hefur komið að mörgum verkefnum sem tengjast sérstaklega nýsköpun á landsbyggðunum og starfaði áður m.a. hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Capacent. Almannatengsl hafa verið samofin þeim verkefnum sem Silja hefur annað hvort komið að eða stýrt undanfarin ár og þar á meðal mikil samskipti við fjölmiðla, stjórnvöld, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Silja hefur nú þegar störf í hlutastarfi en kemur inn í fullt starf í haust.

Á sama tíma og við bjóðum Silju velkomna í hóp starfsfólks Háskólans á Akureyri þökkum við Katrínu Árnadóttur hjartanlega fyrir störf hennar í þágu háskólans undanfarin ár og óskum henni alls velfarnaðar á nýjum vettvangi.