Skólp og kennslutækifæri leiða aðjúnkt til Færeyja

Aðjúnkt við Auðlindadeild tók að sér kennslu við verklega örverufræði
Eva María, með rautt hálsband, ásamt starfsfólki rannsóknastofu og nemendum við Fróðskaparsetur Fære…
Eva María, með rautt hálsband, ásamt starfsfólki rannsóknastofu og nemendum við Fróðskaparsetur Færeyja

„Fyrir 2 árum hefði mér ekki dottið í hug að ég ætti eftir að kenna í Færeyjum,” segir Eva María Ingvadóttir, aðjúnkt við Auðlindadeild sem í febrúarmánuði dvaldi við Fróðskaparsetur Færeyja þar sem hún kenndi verklega örverufræði við náttúruvísindadeild.


Eva undirbýr kennslu

Forsaga dvalarinnar er sú að starfsfólk Auðlindadeildar fékk Nordplus-styrk haustið 2024 og heimsótti Fróðskaparsetur auk stofnana og fyrirtækja í nágrenni Þórshafnar. Í þeirri ferð kynntist Eva meðal annarra Anni Djurhuus dósent sem þá var að rannsaka sýklalyfjaónæmar örverur í skólpi í Færeyjum. „Þau sem þekkja mig vita að skólphreinsun er eitthvað sem ég hef ómældan áhuga á og því náðum við Anni strax vel saman,” segir Eva.

Anni hafði svo samband við Evu í lok síðasta árs, sagðist vera að fara í rannsóknarleyfi og spurði hvort hún hefði áhuga á að taka að sér verklega kennslu í örverufræði á þessu vormisseri. “Ég ákvað að grípa tækifærið og sé svo sannarlega ekki eftir því. Bæði starfsfólk deildar og nemendur tóku afskaplega vel á móti mér. Náttúruvísindadeildin er flutt í nýtt húsnæði og aðstaðan til verklegrar kennslu er þar til fyrirmyndar,” segir Eva.


Úr verklegri örverufræði við Fróðskaparsetur

Við deildina leggja nemendur meðal annars stund á nám til BSc-gráðu í líffræði, sameindalíffræði og verkfræði. „Við setrið er hins vegar líka menntavísindadeild, heilbrigðisvísindadeild, sögu- og félagsvísindadeild og deild færeyskra bókmennta og máls. Tækifærin til samstarfs eru því mjög mikil,” segir Eva og bætir við: „kennaraskipti af þessu tagi eru frábær leið til tengslamyndunar og kennsluþróunar”.