Bjóða upp á námskeiðið Samræðufélaga í haust og kynna nýja vefsíðu námsmats á íslensku sem öðru tungumáli
Námskeiðið Samræðufélagar e. Talking Partners verður haldið í haust bæði á Akureyri og í Reykjavík. Um er að ræða bæði námskeið fyrir kennara með aldurshópinn 5-12 ára og svo kennara barna á aldrinum 12-18 ára og eru námskeiðin aðlöguð að aldurshópunum. Námskeiðin eiga því við kennara á öllum þremur skólastigunum, leik,- grunn og framhaldskóla.
Aðferðin Samræðufélagar gerir nemendum kleift að þroska samskipti sín og hæfileika í tjáningu og hlustun. Hún byggir á þekktum leiðum, meðal annars á kenningum Vygotsky´s um svæði hins mögulega þroska. Árangurinn af aðferðinni hefur verið góður, hún gefur nemendum tækifæri til að auka grunnfærni í samskiptum. Samræðufélagar var upphaflega þróað í Bretlandi fyrir nemendur sem voru að læra ensku sem annað mál. Hins vegar hentar það líka öðrum nemendum sem þurfa að þjálfa samræður. Verkefnið var þýtt af Rannveigu Sigurðardóttur og Rúnari Sigþórssyni.
Samræðufélagaaðferðin hefur verið rannsökuð bæði í Bretlandi en einnig nú á Íslandi. Breskar rannsóknir hafa gefið mjög jákvæðar niðurstöður, nemendum sem hafa farið í gegnum 10 vikna námskeiðið hefur farið mikið fram. Á Íslandi er ein rannsókn í gangi um þessar mundir TALÍS – að tala og læra íslensku í skólum þar sem árangur Samræðufélaga á nemendur er skoðaður. Fyrstu niðurstöður sýna framfarir. Það verður spennandi að sjá hverjar lokaniðurstöður þar verða.
Frekari upplýsingar og dagsetningar um Samræðufélaga má nálgast með því að smella hér.
Svara ákalli eftir námsmati frá ÍSAT kennurum
Námsmatsverkefni í íslensku sem öðru tungumáli er verkfæri sem mikið ákall hefur verið eftir hjá ÍSAT kennurum og öðrum sem starfa við að kenna fjöltyngdum nemendum í íslensku skólakerfi. Ástæðan er sú að með því er auðvelt að raða nemendum á hæfnistig ÍSAT í Aðalnámskrá grunnskóla og tryggja þeim námsefni við hæfi.
MSHA kynnir isatmat.is, vefsíðu sem heldur utan um námsmatsverkefni fyrir öll aldursstig og öll hæfnistig ÍSAT alls tíu talsins. Þau eru unnin upp úr Aðalnámskrá grunnskóla og styðjast við hæfniviðmið ÍSAT sem þar eru að finna.
Verkefnin er ýmist hægt að vinna stafrænt eða á pappír. Með verkefnunum fylgja matskvarðar sem nýtast við úrvinnsluna. Gert er ráð fyrir að nemendur þurfi að leysa 80% verkefnanna rétt til að ná markmiðum og komast yfir á næsta hæfnistig.
Hér má finna kynningarmyndband um vefsíðuna.