Á annan tug fræðafólks frá HA tók virkan þátt í stórri norrænni ráðstefnu með fjölda erinda ásamt því að stýra málstofum
Ráðstefna Nordic Educational Research Association (NERA) árið 2026 bar yfirskriftina „Courage and Agency in Education for the Present“ þar sem áhersla var lögð á hlutverk menntunar við að efla virka þátttöku einstaklinga í samfélaginu, styrkja getu fólks til að taka ábyrgð, hafa áhrif og þróa áræðni til slíkrar þátttöku.
Þátttakendur á ráðstefnunni voru vel á annað þúsund. Hátt í 400 erindi voru flutt auk þess sem haldnir voru reglubundnir fundir í um 25 fræðanetum á sviði menntarannsókna á Norðurlöndum.
Kennaradeild HA átti margt fræðafólk á ráðstefnunni sem kynnti rannsóknir sínar, ýmist í formi einstaklingserinda eða erinda í samvinnu við rannsóknarfélaga hérlendis og erlendis.
Samvinnurannsóknir og sameiginleg erindi
Ýmis erindi voru flutt í samstarfi við aðra háskóla og rannsóknarteymi, bæði innanlands og á Norðurlöndum. Birna María Svanbjörnsdóttir flutti tvö erindi í samstarfi við annað fræðafólk:
- Coherence in teacher education: Exploring perspectives from Icelandic universities, í samstarfi við Háskóla Íslands.
- Voices from the early years, ásamt norrænum samstarfsaðila.
INSPECT-verkefnið var jafnframt áberandi og í því verkefni taka Hermína Gunnþórsdóttir, Bergljót Þrastardóttir og Garðar Ágúst Árnason þátt frá HA. Í málstofulotu um verkefnið flutti Hermína erindið Factors influencing teachers’ well-being in Icelandic compulsory schools.
Þá flutti Bergljót Þrastardóttir erindið Shaping Nordic student identities in transitions from basic school to upper secondary education, þar sem Hermína Gunnþórsdóttir er meðhöfundur.
HA-starfsfólk stýrði málstofum
Starfsfólk HA sinnti einnig lykilhlutverkum sem stjórnendur málstofa, samhliða því að kynna eigin rannsóknir. Meðal þeirra voru:
- Kristín Dýrfjörð með erindið From pedagogical autonomy to standardised literacy: A Gramscian analysis of Icelandic preschool teachers’ perspectives.
- Rannveig Oddsdóttir með erindið Parents’ attitudes and experiences regarding reading homework in one Icelandic school.
- Guðmundur Engilbertsson fór með erindið The organisation and follow-up of reading support at the youngest level of primary school.
- Sigríður Margrét Sigurðardóttir með erindið Sustainable educational leadership in rural and remote Nordic–Arctic regions: What do we know, and where do we need to go?
Fleiri rannsóknir af vettvangi HA
Fleira fræðafólk frá Kennaradeild HA kynnti jafnframt áhugaverðar rannsóknir sem snúa að skólastarfi, kennaranemum og samfélagslegum áskorunum:
- Sigríður Margrét Sigurðardóttir flutti erindið The dual experience of exhaustion and resilience among pre- and compulsory school principals in Iceland during COVID-19.
- Þorlákur Axel Jónsson flutti erindið Social segregation and enrollment in Icelandic upper secondary schools.
- Jórunn Elídóttir og Sólveig Zophoníasdóttir kynntu afstöðu kennaranema til gervigreindar í erindinu Student teachers’ attitudes toward ChatGPT: Opportunities, challenges, and responsible use.
- Valgerður Pálmadóttir fjallaði um siðfræði í kennslu í erindinu Teaching ethics through readings of Frankenstein: Various perspectives.
- Anna Lilja Sævarsdóttir kynnti aðgerðarrannsókn sína í leikskóla í erindinu The Iðavöllur spirit: An action research study on slow leadership, cultural transfer, and team resilience in preschool expansion.
Erindin sýna vel þann fjölbreytileika sem finna má í rannsóknum fræðafólks Kennaradeildar.
NERA ráðstefnan er haldin árlega og verður næst haldin í Tromsö í Noregi að ári.