Stefna á notkun nýrra stúdentagarða haustið 2026

FÉSTA í samstarfi við Arkitektafélag Íslands efnir til framkvæmdasamkeppni um hönnun á nýjum stúdentagörðum
Stefna á notkun nýrra stúdentagarða haustið 2026

Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) í samstarfi við Arkitektafélag Íslands efnir til framkvæmdasamkeppni um hönnun á nýjum stúdentagörðum. Samkeppnissvæðið er innan háskólasvæðisins, nánar til tekið á austurjaðri þess og meðfram Dalsbraut. Samkeppnissvæðinu er skipt upp í tvær lóðir. Uppbygging stúdentagarðanna er fyrirhuguð í tveimur áföngum, fyrri áfanginn yrði uppbygging á nyrðri lóðinni og seinni áfanginn yrði á syðri lóðinni. Áætlaður framkvæmdatími fyrri áfanga er vorið 2025, tilbúið til notkunar haustið 2026.

„Ég bind vonir við að við fáum fullt af frábærum tillögum. Með tilkomu nýrra bygginga getur FÉSTA annast betur þá eftirspurn sem hefur verið á stúdentaíbúðum síðustu ár. Veruleg aukning hefur til dæmis verið eftir minna húsnæði en meirihluti þeirra íbúða sem við eigum í dag eru stærri íbúðir. FÉSTA vill geta boðið upp á fleiri leigurými fyrir þá stúdenta sem vilja flytja til Akureyrar á meðan námi þeirra stendur. Þá er mikilvægt að byggja upp stúdentagarða á háskólasvæðinu sjálfu en slík uppbygging hefur ótal tækifæri í för með sér, það má í raun segja að þetta sé mikilvægt púsl í háskólasamfélagið hér á AKureyri,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÉSTA.


Skýringarmynd — mögulegar byggingar

Markmið samkeppninnar er að fá tillögur sem gerir FÉSTA kleift að byggja bjartar og aðlaðandi íbúðir í góðu samræmi við húsnæðisþarfir stúdenta HA. Áhersla er á vistvænt skipulag, vistvottaðar byggingar og blágrænar ofanvatnslausnir. Byggingar skulu falla vel að landslagi og endurspegla góða byggingarlist. Horft er til að formun á innra og ytra rými sé sannfærandi og hvetji til samveru og auki á félagsfærni og vellíðan íbúa. Miða skal við að allur frágangur bygginga og lóða sé vandaður og endingargóður. Lögð er áhersla á aðlaðandi umhverfi í samræmi við stefnu FÉSTA um uppbyggingu stúdentagarða.

Áhugasöm geta nálgast nánari upplýsingar um samkeppnina hér.