Stilla tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna

Kristín Dýrfjörð við Kennaradeild þátttakandi í þróun verkefnisins
Stilla tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna

Þróunarverkefnið Stilla – hæglátt leikskólastarf, sem Kristín Dýrfjörð, dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, hefur tekið þátt í að þróa undanfarin ár, er tilnefnt til Íslensku menntaverðlaunanna 2026. Kristín og dr. Anna Magnea Hreinsdóttir við menntavísindasvið HÍ höfðu á sínum tíma frumkvæði að verkefninu. Verðlaunin verða afhent á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember.

Kristín er einn rannsakenda verkefnisins, sem byggir á samstarfi fræðafólks við Háskólann á Akureyri, Háskóla Íslands og Suðaustur-háskólann í Noregi og starfsfólks fjögurra leikskóla. Markmiðið er að þróa hæglátt leikskólastarf og auka skilning á því hvernig börn upplifa tímann í leikskólanum.

Í Stillu er lögð áhersla á að börn fái tíma og svigrúm til að sökkva sér í leik, kanna hugmyndir sínar og þróa þær áfram. Starfsfólk gefur sér næði til að hlusta á börnin og fylgja áhuga þeirra, með leik og nám á forsendum barnanna að leiðarljósi.

Leikskólarnir sem taka þátt eru Iðavöllur á Akureyri, Aðalþing í Kópavogi, Rauðhóll í Reykjavík og Ugluklettur í Borgarnesi. Verkefnið tengir þannig rannsóknir við HA beint við þróun leikskólastarfs, bæði á Akureyri og annars staðar á landinu.

Leikur og sköpun í rannsóknum Kristínar

Kristín hefur komið að fjölbreyttum rannsóknum á leikskólastarfi, meðal annars á leik, sköpun og tæknilæsi ungra barna. Hún tók þátt í alþjóðlega rannsóknarverkefninu MakEY, sem stóð yfir á árunum 2017–2019 og fjallaði um hvernig sköpunarsmiðjur geta stutt við stafrænt læsi og sköpun barna.

Í hluta verkefnisins við HA fengu fimm ára börn tækifæri til að kynnast stafrænni tækni í gegnum leik og skapandi verkefni í eigin leikskólaumhverfi. Þar unnu þau meðal annars með sögugerð, hönnun og forritanleg leiktæki. Rannsóknirnar eru dæmi um hvernig Kristín og samstarfsfólk hennar hafa unnið með leikskólum að því að efla þekkingu á námi barna og þróa starfshætti sem gefa hugmyndaflugi þeirra rými.

VMA einnig tilnefndur

Verkmenntaskólinn á Akureyri er einnig meðal tilnefndra, í flokki iðn- og verkmenntunar, fyrir verkefnið Sjálfbær kennslustofa. Í skólanum hefur verið sett upp sólarorkuver og sköpuð aðstaða til að vinna að fjölbreyttum verkefnum sem tengjast því. Tilnefningin er fyrir nýsköpunarverkefni sem þykir til fyrirmyndar í markvissri umhverfismennt.

Alls eru þrettán tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna í ár: þrjár fyrir framúrskarandi skólastarf, fjórar fyrir framúrskarandi kennslu, þrjár fyrir þróunarverkefni og þrjár fyrir iðn- og verkmenntun. Auk þess verða sérstök hvatningarverðlaun veitt án tilnefninga.

Nánari upplýsingar um Íslensku menntaverðlaunin og tilnefningar ársins.