Analaise Maria Sepp-Dallas, stúdent í heimskautarétti, tók nýverið þátt í Arctic Youth Dialogue 2026
Um er að ræða verkefni á vegum Evrópusambandsins sem er hluti af stefnu þess í málefnum norðurslóða.
Um er að ræða vettvang fyrir ungt fólk frá Evrópu og norðurskautsríkjunum þar sem þátttakendur skiptast á sjónarmiðum, efla gagnkvæman skilning og taka þátt í umræðum um framtíð norðurslóða. Núna komu saman 34 ungmenni með fjölbreyttan bakgrunn til að ræða þær pólitísku, félagslegu og umhverfislegu áskoranir sem svæðið stendur frammi fyrir. Nokkrir aðilar standa að því að bjóða upp á vettvanginn og er helsti bakhjarlinn Youth Together for Arctic Futures sem Evrópusambandið og Global Affairs Canada fjármagna sameiginlega
Fimm tillögur rata til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
Í ár beindist samtalið að ólíkum hliðum öryggismála á norðurslóðum. Þátttakendur störfuðu í fjórum þemahópum sem fjölluðu um heilbrigðisöryggi, fæðuöryggi, menningarlegt fullveldi og loftslagsöryggi.
Analaise tók þátt í hópnum um menningarlegt fullveldi og öryggi. Þar var fjallað um hvernig tryggja megi, með þátttöku allra og sanngjörnum ferlum, menningarlegt öryggi íbúa norðurslóða og standa vörð um sjálfsmynd þeirra. Hópurinn vann fimm tillögur að stefnumótandi aðgerðum sem beint var til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Analaise segir reynsluna hafa verið afar dýrmæta. „Í heildina var þetta einstakt tækifæri til að deila reynslusögum, skiptast á sjónarmiðum og læra af ungu fólki alls staðar að af norðurslóðum. Sem Eisti fannst mér sérstaklega dýrmætt að eiga bein samskipti við sveitarstjóra á norðurslóðum, fulltrúa frumbyggja og ungt fólk frá norðurskautsríkjunum. Ég fékk að kynnast svæðinu í gegnum reynslu fólksins sem þar býr, sjónarhornum sem ég hefði annars mun færri tækifæri til að heyra.“

Analaise tók einnig þátt í EU Arctic Forum sem var hluti af dagskránni. Þar lagði hún sitt af mörkum í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Keeping climate and biodiversity on the agenda in a crowded political landscape.
Heimskautaréttur opnar möguleika
Námið í heimskautarétti við Háskólann á Akureyri er alþjóðlegt og þverfræðilegt nám sem kennt er alfarið á ensku. Þar er fjallað um réttarkerfi, stjórnarhætti, íbúa, umhverfi og auðlindir norður- og suðurskautssvæðanna. Sérstök áhersla er lögð á alþjóðalög, umhverfisrétt, réttindi frumbyggja og stjórnarhætti á heimskautasvæðunum. Boðið er upp á MA- og LLM-gráður auk diplómanáms og námið laðar að sér nemendur og fræðafólk með fjölbreyttan náms- og starfsbakgrunn.
Hefur þú áhuga á að hefja nám í heimskautarétti? Opnað verður aftur fyrir umsóknir veturinn 2026.
Nánari upplýsingar: Polar Law – University of Akureyri
Texti: Sara Fusco, aðjúnkt og umsjónarmaður lokaverkefna í heimskautarétti. Greining og ljósmyndir: Analaise Maria Sepp-Dallas, nemandi í heimskautarétti.