„Það er góður andi í skólanum, kennararnir eru aðgengilegir og samfélagið þétt"

Benedikt Kristján Guðbjartsson, stúdent Háskólans á Akureyri, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í háskólanum.
„Það er góður andi í skólanum, kennararnir eru aðgengilegir og samfélagið þétt

Benedikt Kristján Guðbjartsson, stúdent Háskólans á Akureyri, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í háskólanum.

Benedikt stundar nám í sjávarútvegsfræði og viðskiptafræði við HA. Hann segir valið hafa legið nokkuð beint við. „Ég hef alltaf haft áhuga á sjávarútvegi og unnið í störfum tengdum honum. Þegar ég sá að HA bauð upp á viðskiptafræði og sjávarútvegsfræði var ég strax seldur,“ segir Benedikt.

Benedikt frá Húsavík en hann ákvað að flytja til Akureyrar til að upplifa háskólalífið til fulls. „Mig langaði að prófa eitthvað nýtt og fá alvöru háskólaupplifun,“ útskýrir hann.

Hann ber reynslunni á Akureyri vel söguna og segir að aðlögunin hafi gengið einstaklega vel. „Það er góður andi í háskólanum, kennararnir eru aðgengilegir og samfélagið þétt. Það hefur verið auðvelt að finna jafnvægi á milli náms og félagslífs,“ segir Benedikt.

Að hans mati hefur komið mest á óvart hversu náið samfélagið er innan HA. „Það myndast fljótt góð tengsl milli stúdenta og starfsfólks og það skapar mjög jákvætt námsumhverfi,“ útskýrir hann nánar.

Verklegir þættir námsins standa upp úr að mati Benedikts, sérstaklega í sjávarútvegsáföngunum. Hann segir jafnframt að Borgir séu hans uppáhaldsstaður til þess að læra. „Aðstaðan þar er frábær og við erum með góðan kaffikrók,“ bætir hann við.

Þegar talið berst að því besta við að vera stúdent við HA stendur ekki á svari „félagslífið, hundrað prósent,“ segir Benedikt.

Fram undan er sumar þar sem vinna verður í forgrunni. Benedikt hyggst starfa í seiðaeldi hjá Kaldvík, sem tengist beint námi hans, en hann ætlar þó einnig að njóta sumarsins og er með í það minnsta einn tónlistarviðburður sé á planinu. „Ég ætla klárlega að kíkja á Kaleo,“ segir hann.

Að lokum hefur Benedikt skýr skilaboð til þeirra sem verða nýnemar við Háskólann á Akureyri í haust: „Mætið á viðburði! Það er svo mikilvægt að komast inn í félagslífið. Stúdentafélögin eru mjög dugleg að halda skemmtilega viðburði og vísindaferðir.“

Að lokum lýsir hann lífinu á Akureyri í þremur orðum: Stemming, félagslíf og samfélag.