Þekkingarþing og endurnýjun samstarfssamnings

Háskólinn á Akureyri og AkureyrarAkademían hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli.
Þekkingarþing og endurnýjun samstarfssamnings

Samningurinn hefur það að markmiði að efla og styðja við samstarf og stuðla að sem bestri nýtingu sérfræðiþekkingar, kunnáttu, efniviðs og aðstöðu. Er þessu samstarfi ætlað að koma þekkingu á framfæri á einfaldan og aðgengilegan hátt og hvetja til samræðna um fræði og vísindi. 

Í framhaldi undirritunar samningsins var haldið Þekkingarþing í liðinni viku í húsnæði Háskólans á Akureyri þar sem fulltrúar frá háskólum, háskólasetrum og þekkingar- og fræðasetrum á Norður- og Austurlandi kynntu starfsemi sína og ræddu um mögulegt samstarf til framtíðar. Voru þar saman komin Háskólinn á Hólum, Samtök sveitarfélaga á Norðvestur- og Norðausturlandi, AkureyrarAkademían, Þekkingarnet Þingeyinga, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Ströndum/Þjóðfræðistofa, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Húsavík, Austurbrú á Egilsstöðum, Textílsetrið á Blönduósi og Háskólinn á Akureyri.

Var þar lögð áhersla á hvernig hægt væri að vinna saman, hvað væri sameiginlegt og hvað aðskildi á milli stofnana. Þá var hugað að næstu skrefum í mögulegu samstarfi. Sköpuðust lifandi, áhugaverðar og skemmtilegar samræður og verður spennandi að halda umræðunni áfram.