Fimmtán þátttakendur í Sjávarútvegsskóla GRÓ ásamt tveimur starfskröftum Hafrannsóknarstofnunar eru þessa dagana í námsheimsókn á Akureyri. Heimsóknin er hluti af norðurferð þátttakenda þar sem áhersla er lögð á íslenskan sjávarútveg, fiskveiðistjórnun, sjávarútvegsstefnu og tengsl sjávarútvegs við samfélög.

Á dagskrá er fjölbreytt fræðsla og vettvangsheimsóknir. Þátttakendur hafa meðal annars fengið kynningu á íslenskum sjávarútvegi og fiskveiðistjórnun í Háskólanum á Akureyri og heimsótt Síldarminjasafnið á Siglufirði, Ramma, Reykhúsið á Skútustöðum, Samherja og fiskmarkaðinn á Dalvík, Sæplast, Hvalasafnið og GPG á Húsavík. Einnig er fjallað um efnahag sjávarútvegs og mat á áhrifum fiskveiðistefnu.
Alls eru 17 þátttakendur í árgangi Sjávarútvegsskóla GRÓ frá tíu löndum í Afríku, Asíu og Karíbahafi. Þeir sérhæfa sig á þremur sviðum: fiskveiðistefnu og stjórnun, mati og vöktun á nytjastofnum og sjálfbæru fiskeldi.
Hluti þátttakenda dvelur áfram á Akureyri
Eftir norðurferðina munu sex þátttakendur frá Kenía, Indónesíu, Malaví, Líberíu, Jamaíku og Sierra Leone dvelja áfram á Akureyri við nám og verkefnavinnu fram í febrúar. Þetta er sjötta árið sem þátttakendur Sjávarútvegsskóla GRÓ dvelja á Akureyri sem hluti af námskeiðinu.

Samstarf Háskólans á Akureyri og Sjávarútvegsskóla GRÓ hefur skapað öflugt alþjóðlegt tengslanet á sviði sjávarútvegs og gefur bæði þátttakendum og starfsfólki HA tækifæri til að miðla þekkingu og reynslu þvert á landamæri.
Umsjónarmenn verkefnis á Akureyri eru frá Auðlindadeild, það eru þeir Hreiðar Þór Valtýsson, dósent og Magnús Víðisson, aðjúnkt.