Þín reynsla skiptir máli

Jafnréttisráð HA leitar að stúdentum til þátttöku í rýnihópaviðtöl
Þín reynsla skiptir máli

Jafnréttisráð HA leitar að stúdentum í rýnihópaviðtöl í haust til að deila reynslu sinni af námi og háskólalífi. Markmiðið er að fá innsýn í reynslu og stöðu stúdenta með fjölbreyttan bakgrunn innan Háskólans á Akureyri svo hann geti komið betur til móts við fjölbreyttar þarfir stúdenta og stuðlað að námsumhverfi þar sem öll fá notið sín.

Verkefnið er styrkt af Framkvæmdasjóði hinsegin málefna. Við viljum heyra sjónarmið stúdenta með ólíkan bakgrunn, reynslu og þarfir, meðal annars hvað varðar kynvitund, kynhneigð, uppruna, fötlun og taugafjölbreytileika. Undir þetta gætu til dæmis fallið stúdentar af erlendum uppruna, stúdentar með fötlun og stúdentar með ADHD, einhverfu eða lesblindu. Öllum stúdentum HA sem hafa áhuga á að deila reynslu sinni er hinsvegar velkomið að taka þátt.

Í rýnihópaviðtölunum gefst þátttakendum tækifæri til að segja frá upplifun sinni af náminu og háskólaumhverfinu, ræða það sem vel er gert og benda á það sem betur mætti fara. Þau verða skipulögð þannig að stúdentar með sambærilegan bakgrunn eða reynslu taki þátt í umræðum saman þannig að ólík sjónarmið fái að koma fram og þátttakendum gefist svigrúm til að ræða eigin reynslu.

Áhugasöm eru hvött til að hafa samband við Lara W. Hoffmann, starfskraft jafnréttisráðs, á netfangið laraw@unak.is til að fá nánari upplýsingar um þátttöku.

Verkefnið fellur vel að metnaðarfullri jafnréttisáætlun Háskólans á Akureyri fyrir árin 2025–2028. Þar er lögð áhersla á jöfn tækifæri, fjölbreytileika og inngildingu, með það að leiðarljósi að öll tilheyri háskólasamfélaginu og að náms- og starfsumhverfið taki mið af ólíkum þörfum fólks.

Jafnréttisáætlun HA má lesa hér og er hún einnig aðgengileg á ensku.