Tilhögun Háskólahátíðar 2026

Háskólahátíð – brautskráning kandídata frá Háskólanum á Akureyri fer fram 19. og 20. júní
Tilhögun Háskólahátíðar 2026

Háskólahátíð – brautskráning kandídata frá Háskólanum á Akureyri fer fram föstudaginn 19. júní og laugardaginn 20. júní 2026. Síðustu ár hafa kandídatar í framhaldsnámi verið brautskráðir á föstudegi en í ár verður brautskráningarathöfnum deildarskipt óháð námsgráðu.

Skipting athafna er sem hér segir:

  • Föstudaginn 19. júní klukkan 10.00 verður brautskráning kandídata í Hjúkrunarfræðideild og Iðjuþjálfunarfræðideild
  • Föstudaginn 19. júní klukkan 14.00 verður brautskráning kandídata í Auðlindadeild og Viðskiptadeild
  • Laugardaginn 20. júní klukkan 10.00 verður brautskráning kandídata í Kennaradeild og Lagadeild
  • Laugardaginn 20. júní klukkan 14.00 verður brautskráning kandídata í Félagsvísindadeild og Sálfræðideild

Hefur þú skráð þig til brautskráningar?

Athugið að enginn er sjálfkrafa skráður til brautskráningar. Lokadagur til að skrá sig til brautskráningar er 1. maí 2026. Stúdentar sem hyggja á brautskráningu í júní 2026, og eru ekki nú þegar skráðir með áætlaða brautskráningu í júní 2026 í Uglu, eru vinsamlega beðnir um að skrá sig með tölvupósti á nemskra@unak.is eða til verkefnastjóra sinnar námsleiðar. Athugið að skráning til brautskráningar gildir ekki sem mæting á Háskólahátíð.

Skráning á Háskólahátíð

Kandídatar þurfa að skrá sérstaklega hvort þeir hyggist taka þátt í Háskólahátíð eða ekki. Athugið að áætluð brautskráning í Uglu jafngildir ekki skráningu í athöfnina. Mikilvægt er að kandídatar kynni sér vel þær upplýsingar sem nú liggja fyrir og séu meðvitaðir um helstu tímasetningar.

Nánari upplýsingar og skráning:

Mikilvægt er að kandídatar kynni sér vel helstu tímasetningar í tengslum við Háskólahátíð. Allar helstu upplýsingar varðandi hátíðina eru aðgengilegar í viðburðunum hér að ofan.
Nánari upplýsingar veitir Sólveig María Árnadóttir (solveigmaria@unak.is), viðburðastjóri Háskólahátíðar.

Við hlökkum til að gleðjast með þér!