Í lok nóvember síðastliðnum tók lið frá Háskólanum á Akureyri þátt í alþjóðlegu forritunarkeppninni NWERC 2025 (Northwestern Europe Regional Contest), sem haldin var í Karlsruhe í Þýskalandi . Keppnin er haldin árlega og er hluti af stærra keppniskerfi í forritun þar sem sterkustu háskólalið Norðvestur-Evrópu etja kappi.

Þetta er í fyrsta sinn sem lið frá HA tekur þátt í þessari virtu keppni. Liðið var skipað stúdentunum Ara Þórðarsyni, Guðmundi Jóni Bergmannssyni og Jóhanni Kjerúlf. Með þeim í för var Daníel Jóhannsson, verkefnastjóri tölvunarfræðideildar HA, sem studdi liðið á meðan dvölinni stóð.
Styrkir stöðu stúdenta að taka þátt í alþjóðlegri keppni
Ferðin hófst á föstudegi með flugi til Frankfurt, þaðan sem hópurinn tók lest til Karlsruhe. Eftir að hafa komið sér fyrir á hóteli var haldið í háskólabyggingar Karlsruhe Institute of Technology þar sem skráning fór fram. Keppendur fengu afhentan varning, boli og annað tengt keppninni. Restin af deginum var nýtt til að skoða borgina, kíkja í verslunarmiðstöð og heimsækja jólamarkaðinn sem setti skemmtilegan svip á ferðina.

Á laugardegi fór fram svokölluð „test session“, þar sem keppendur fengu tækifæri til að prófa keppniskerfið og leysa eitt til tvö æfingadæmi. Þetta gaf liðinu góða innsýn í fyrirkomulag keppninnar og hvernig dagurinn sjálfur myndi ganga fyrir sig. Eftir æfinguna var dagurinn að mestu frjáls; sumir nýttu tímann til verslunarferða á meðan aðrir heimsóttu dýragarð borgarinnar.
Sjálf keppnin fór fram á sunnudegi og stóð yfir í fimm klukkustundir. Keppendur fengu tólf forritunardæmi af mismunandi erfiðleikastigi til úrlausnar og reyndi verulega á bæði þekkingu, útsjónarsemi og samvinnu innan liðsins. Lið HA stóð sig með prýði, leysti krefjandi verkefni og öðlaðist dýrmæta reynslu af þátttöku í alþjóðlegu keppnisumhverfi.
Alls voru 141 lið skráð til leiks frá háskólum víðsvegar um Evrópu, meðal annars frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi, Þýskalandi, Bretlandi, Litháen, Hollandi, Írlandi, Noregi, Eistlandi og Lúxemborg.
Þátttakan markar mikilvægt skref fyrir Háskólann á Akureyri og tölvunarfræðideild hans. Að taka þátt í jafn öflugri og krefjandi keppni og NWERC er bæði lærdómsrík og hvetjandi reynsla fyrir nemendur og styrkir stöðu skólans í alþjóðlegu samhengi.