Um 100 þátttakendur á vinnustofu RHA og Jafnréttisstofu um kynjajafnrétti

Fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnisins Energising Nordic Equality voru kynntar á ráðstefnunni Nordic Energy Impact Days í Kaupmannahöfn
Um 100 þátttakendur á vinnustofu RHA og Jafnréttisstofu um kynjajafnrétti

Hvernig má tengja markmið í jafnréttismálum við raunverulegan árangur í orkugeiranum? Það var viðfangsefni vinnustofu sem Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri og Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu, stýrðu á ráðstefnunni Nordic Energy Impact Days dagana 3.–4. nóvember.

Um 100 þáttakendur voru á vinnustofunni sem þótti takast vel til. Þar kynntu Sæunn og Tryggvi fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnisins Energising Nordic Equality, sem þau vinna að fyrir Nordic Energy Research (NER). Að kynningunni lokinni unnu þátttakendur í litlum hópum, greindu ólíkar hliðar kynjajafnréttis í orkugeiranum og ræddu tengsl markmiðasetningar og árangurs. Áætlað er að verkefninu Energising Nordic Equality ljúki á fyrri hluta árs 2027.

Á ráðstefnunni kynntu rannsakendur fjölbreytt rannsóknarverkefni sem styrkt eru af NER, meðal annars á sviði vetnis og orkuskipta.