Lokaorð á hátíðarmálþingi við Háskólann á Akureyri 4. nóvember 2026
Kæru vinir, nemendur og samstarfsfólk.
Ég vil byrja á að þakka öllum þeim sem hafa staðið að þessu málþingi og þeim sem hér hafa flutt erindi. Það er mikill heiður fyrir mig að efnt skuli til málþings af þessu tagi. Hér hafa góðir vinir rætt um ýmsa þá hluti sem ég hef verið að fást við í gegnum árin eða hafa við þá augljós tengsl. Skemmtilegt og áhugavert hefur verið að hlusta á það sem hér hefur komið fram.
Í lögfræðistússi mínu í gegnum árin hefur val mitt á viðfangsefnum í lögfræði, áhugasvið og afstaða fyrst og fremst mótast af menntun minni í heimspeki og sagnfræði.
Ég heillaðist af heimspeki þegar ég var í menntaskóla. Ég man til dæmis eftir því að hafa farið í bókaverslun Snæbjörns Jónssonar í Hafnarstræti 9 og keypt þar A History of Western Philosophy eftir Bertrand Russell. Líklega var þetta árið 1975. Þetta er mikil bók og ekki beinlínis léttmeti fyrir menntaskólanema, en ég las hana af mikilli áfergju.
Ég tók einnig valnámskeið í heimspeki við Menntaskólann við Tjörnina hjá Eyjólfi Kjalari Emilssyni, sem þá var ungur heimspekinemi við Háskóla Íslands en varð síðar prófessor í heimspeki við Háskólann í Ósló. Í þá daga var ekki óalgengt að kennslubækur í menntaskóla væru á dönsku, en svo var einmitt í heimspekinni þar sem við lásum Filosofiens historie eftir danska heimspekinginn Justus Hartnack.
Á þessum árum las ég líka Tractatus Logico-Philosophicus eftir Ludwig Wittgenstein. Þetta var hluti af menntaskólanáminu að því leyti að nemendur áttu að velja sér á síðasta árinu bók, í samráði við kennara, til að skrifa ritgerð um. Þegar ég bar valið upp við Björn Bjarnason, rektor MT, sem var menntaður stærðfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla, varð hann frekar undrandi og mátti af svip hans greina að hann hefði ekki mikla trú á að þessi meðalnemandi réði við verkefnið. Hann féllst samt á þetta. Ég pantaði mér í sömu bókabúð útgáfu þar sem þýski frumtextinn var á vinstri síðu en enska þýðingin á þeirri hægri. Svo stautaði ég mig í gegnum þetta torf.
Ég skrifaði síðan ritgerð upp úr þessu verki sem bar heitið „Hið ósegjanlega“. Eyjólfur Kjalar leiðbeindi við ritgerðarsmíðina og hjálpaði mér að fóta mig í þessum flóknu hugmyndum.
Wittgenstein fjallar þar meðal annars um mörk tungumálsins og gerir greinarmun á því sem hægt er að segja og því sem aðeins er hægt að sýna. Í ritinu fjallar Wittgenstein meðal annars um að tungumálið geti lýst staðreyndum heimsins, en samt séu ýmis atriði sem skipti okkur miklu máli og verði ekki sett fram með sama hætti í orðum. Þar á meðal eru spurningar um siðferði, fegurð og hin hinstu rök.
Í einni frægustu setningu bókarinnar segir Wittgenstein að hið ósegjanlega sé vissulega til; það sýni sig en verði ekki fært í orð. Síðan lýkur hann bókinni með þeirri frægu setningu að um það sem ekki sé hægt að tala skuli þegja. Mér fannst þetta afar merkilegt á sínum tíma.
Það má þó velta því fyrir sér hvort það hafi verið alveg í anda Wittgensteins að ungur menntaskólanemi skyldi skrifa langa ritgerð einmitt um það sem ekki væri hægt að tala um svo merkingarbært væri.
Síðar stundaði ég nám í heimspeki við Háskóla Íslands hjá þeim Þorsteini Gylfasyni, Páli Skúlasyni og Arnóri Hannibalssyni, auk Mikes Marlies.
Þorsteinn Gylfason var sennilega kröfuharðasti kennari sem ég hef haft. Hjá honum skrifaði ég meðal annars ritgerð um tilvistarstefnu Jean-Paul Sartre og meginhugmyndir hans í Veru og neind (fr. L'Être et le Néant).
Ég man vel eftir vinnunni við þessa ritgerð. Ég skilaði Þorsteini fyrstu drögunum, handskrifuðum eins og þá tíðkaðist. Þorsteinn tók þeim vel og hafði stór orð um hversu frábær þau væru. Síðan fékk ég handritið aftur, útkrotað eftir hann, sumt með rauðum penna en annað með bláum.
Ég vann úr athugasemdunum og skilaði handritinu aftur. Þorsteinn var jafnvel enn hrifnari en áður, en afhenti mér handritið aftur, allt útkrotað í rauðu og bláu. Þetta var góður skóli og kenndi mér að það er eitt að hafa hugmynd í kollinum en annað að koma henni frá sér á skýran og sannfærandi hátt á góðri íslensku. Að lokum varð þessi ritgerð að fyrirlestri sem ég flutti í útvarpinu, gömlu Gufunni.
Í þessum fyrirlestri fjallaði ég meðal annars um þá hugmynd Sartre að maðurinn sé ekki fæddur með fyrirfram ákveðið eðli sem ákvarði hver hann sé og hvað úr honum verði, heldur móti hann sjálfan sig með ákvörðunum sínum og athöfnum. Hann sé frjáls, en frelsinu fylgi ábyrgð. Og sú ábyrgð valdi einmitt angistinni sem við öll finnum fyrir – í mismiklum mæli þó.
Þetta þóttu mér stórkostleg sannindi á þessum árum. Mér finnst enn að í þeim felist mikilvæg áminning um að menn geti ekki alltaf skýlt sér á bak við aðstæður eða utanaðkomandi þætti og vikið sér þannig undan ábyrgð á athöfnum sínum eða ákvörðunum.
Á þessum tíma var í Lögbergi eins konar heimspekistofa á 2. hæð. Þar voru veggir þaktir bókum um heimspeki og þar sat ég ásamt félögum mínum heilu og hálfu dagana við lestur og samræður um heimspekileg viðfangsefni. Á sama tíma stundaði ég nám í sagnfræði og dvaldi löngum stundum í Árnagarði.
Þetta voru mótandi ár. Mér fannst ég vera ásamt félögum mínum að glíma við mikilvægar spurningar um mannlega tilvist, eðli þekkingar og heimsins alls og í minningunni höfðum við sameiginlega komist býsna nærri því að finna svörin. En heimspekin getur verið snúin, svo ekki er það víst, enda er enn verið að ástunda heimspeki.
Til er heimspekileg dæmisaga um þá Dimitri og Tasso og þá hugmynd að Atlas beri heiminn á herðum sér.
Dimitri spyr:
„Ef Atlas ber heiminn á herðum sér, hvað heldur þá uppi Atlasi?“
Tasso svarar:
„Atlas stendur á skel skjaldböku.“
„En hvað heldur skjaldbökunni uppi?“ spyr Dimitri.
„Önnur skjaldbaka,“ svarar Tasso.
„En hvað heldur þá þeirri skjaldböku uppi?“
Þá svarar Tasso:
„Minn kæri Dimitri. Það eru bara skjaldbökur, alla leið niður.“
Sagan er úr bókinni Plato and a Platypus Walk into a Bar: Understanding Philosophy Through Jokes eftir Thomas Cathcart og Daniel Klein, sem kom út árið 2007. Ég keypti bókina í bókabúð í Oxford fyrir mörgum árum og gríp reglulega í hana mér til skemmtunar. Í þessari bók nota höfundarnir húmor, ekki aðeins til að gera heimspekina aðgengilega heldur einnig til að sýna hvernig hversdagslegar spurningar geta leitt til dýpri heimspekilegra vangaveltna.
Samtal þeirra félaga er dæmi um það sem í heimspeki er kallað infinite regress, sem mætti nefna óendanlega afturvísun, eða eins konar egghænuegg. Hver forsenda kallar á nýja forsendu sem aftur kallar á aðra, og þannig koll af kolli í eilífum endurtekningum, án þess að nokkurn tíma sé komist að endanlegri niðurstöðu um nokkurn skapaðan hlut.
Að þessu leyti fólst í því ákveðin einföldun fyrir líf mitt að snúa mér að lögfræði. Á þessum árum var ekki miklum tíma varið í að velta fyrir sér þeim heimspekilegu forsendum sem lögfræðin er reist á. Þær voru gefnar. Maður skoðaði bara það sem kennslubókin listaði upp sem viðurkenndar réttarheimildir og reglurnar sem giltu um túlkun þeirra og komst þannig að Niðurstöðunni með stóru enni! Lögfræðin var lokað kerfi með eigin reglum og aðferðum sem voru á stundum slitnar úr tengslum við veruleikann í kringum okkur. Námið fólst í að læra á þetta lokaða kerfi og beita því rétt.
Í lögfræðinni þurfti maður jú að ákveða sig og komast að niðurstöðu og hætta að þráspyrja á hverju hver forsenda byggðist. Fyrr eða síðar yrði að dæma í málinu og hætta svo að pæla frekar í því og snúa sér að því næsta.
En minn vandi var sá að það voru einmitt forsendurnar sem ég hafði mestan áhuga á. Þær virtust mörgum svo sjálfsagðar. Ég fór að þráspyrja.
Tökum einfalt dæmi. Ein af þeim forsendum sem réttarkerfið byggist á er að borgararnir þekki lögin, eða geti að minnsta kosti ekki borið fyrir sig vanþekkingu á þeim sér til afbötunar. Án slíkrar forsendu væri erfitt að halda uppi lögum sem giltu jafnt um alla.
En það er alkunna að fæstir þekkja nema örlítið brot af þeim lögum sem um þá gilda. Jafnvel lögfræðingar þekkja ekki nema takmarkaðan hluta þeirra. Og þótt lög séu birt opinberlega þýðir það ekki að fólk hafi lesið þau, og enn síður skilið. Öfugt við þessa gefnu forsendu er veruleikinn einmitt sá að fólk almennt þekkir hvorki lögin né skilur þau. Það festist í lagavefnum eins og fluga í köngulóarvef.
Þetta leiðir hugann að því sem bandaríski réttarheimspekingurinn Lon L. Fuller fjallaði um í skrifum sínum um það sem á ensku nefnist legal fictions, og mætti kalla lagalegar uppdiktanir eða -fabúlur.
Fuller benti á að réttarkerfið styddist stundum við forsendur sem menn vissu að væru ekki bókstaflega sannar, en væru engu að síður gagnlegar og jafnvel nauðsynlegar til að kerfið virkaði. Slíkar fabúlur væru ekki lygar í venjulegum skilningi. Forsendan um að allir þekki lögin er dæmi um slíka fabúlu. Við vitum að hún stenst ekki sem lýsing á raunveruleikanum, en réttarkerfið verður að haga sér að verulegu leyti eins og hún sé sönn.
Þær eru fleiri, þessar lagalegu fabúlur og tilbúnu viðmið sem lögfræðin styðst við. Skynsami maðurinn (bonus pater) í skaðabótarétti er dæmi um slíkt viðmið, því þessi maður eða kona er ekki til. Hann var sennilega fundinn upp af tryggingafélögum til að draga úr ásókn tjónþola í bætur úr tryggingum með því að kenna honum sjálfum um tjón sitt. Ég hef áður fjallað um þriðja mann og árangurslausa leit mína að honum.
Þarna kemur heimspekin aftur til sögunnar. Hún knýr okkur til að spyrja hvers vegna við samþykkjum tilteknar forsendur og hvaða afleiðingar það hefur. Og kannski ekki síður hvenær forsendur sem eru gagnlegar í einu samhengi geta verið villandi eða jafnvel ósanngjarnar í öðru.
Sagnfræðin var mér þar ekki síður mikilvæg en heimspekin. Hún minnti mig á að réttarreglur, stofnanir og lögfræðilegar hugmyndir hefðu myndast við tilteknar sögulegar aðstæður og í tengslum við tiltekna hagsmuni. Það sem okkur virðist sjálfsagt í dag hefur ekki alltaf verið sjálfsagt. Og margt af því sem við teljum nú sjálfgefið í lögfræði kann að líta allt öðruvísi út eftir nokkra áratugi.
Hvað sem þessu líður, og nú beini ég orðum mínum sérstaklega til nemenda sem hér eru: Ekki nálgast lögfræðina eingöngu sem tæknilegt viðfangsefni. Hún er auðvitað tæknileg að nokkru marki og góðir lögfræðingar þurfa að kunna til verka. En lögfræðin fjallar líka um samfélagið, um vald og takmarkanir þess, um hagsmuni, um réttlæti, frelsi og ábyrgð. Hún snýst um ákvarðanir sem hafa áhrif á líf fólks. Og þá er hollt og gott að velta fyrir sér grunninum sem hún er reist á.
Og nú, þegar ég er kominn á þann aldur að samferðafólk heldur hátíðarmálþing manni til heiðurs, þá finn ég að áhuginn beinist ef til vill í vaxandi mæli aftur að þeim spurningum sem leiddu mig á braut lögfræðinnar. Að spurningum um eðli réttarins, forsendur hans og takmörk. Spurningum sem heyra undir réttarheimspekina eða kennilega lögfræði og sem ekki fást svör við með því að fletta upp í lagasafni eða lesa dóma.
Sem sagt, ég byrjaði á sögu og heimspeki, fór síðan í lögfræði og hef nú að nýju farið að velta fyrir mér sögulegum og heimspekilegum grundvelli hennar.
Þegar ég hugsa um þetta rennur upp fyrir mér að það eru ekki fyrst og fremst svörin sem ég hef reynt að gefa í fræðistörfunum eða kennslunni sem skipta máli. Sum þeirra kunna að vera rétt, önnur síður og örugglega sum röng eða úrelt. Kannski skipta spurningarnar þó meira máli og hvort einhverjar þeirra hafa orðið öðrum tilefni til umhugsunar eða jafnvel leitt þá til að spyrja nýrra spurninga. Ef það er rétt hefur tímanum ekki verið illa varið.
Mig langar í lokin að víkja aftur að Wittgenstein og ritgerðinni minni gömlu um hið ósegjanlega. Kannski er nokkuð til í því hjá Wittgenstein að það sem skiptir okkur mestu máli verði ekki alltaf tjáð með orðum, heldur sýni sig öðruvísi.
Ég ætla þess vegna ekki að segja öllu fleiri orð um hvað þessi dagur og sú vinátta og velvild sem mér hefur verið sýnd merkir fyrir mig. Ég læt nægja að þakka ykkur innilega fyrir.
Ég ætla að fara að ráðum Wittgensteins, að um það sem ekki er hægt að tala um svo vit sé í, eigi að þegja. Ég læt hér staðar numið.
Dr. jur. Davíð þór Björgvinsson prófessor emeritus og fyrrv. dómari við Mannréttindadómstól Evrópu