Umsækjendur um stöðu Forstöðumanns Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar

Níu umsóknir bárust um stöðuna
Umsækjendur um stöðu Forstöðumanns Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar

Háskólinn á Akureyri auglýsti á dögunum eftir forstöðumanni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar (SVS). Umsóknarfrestur til að sækja um stöðuna var 15. ágúst síðastliðinn. Níu umsóknir bárust og eru umsækjendur eftirtaldir:

  • Dr. Adam Daniel Fishwick, rannsóknastjóri og gestaprófessor
  • Dr. Aneta Aleksandra Ostrowska, sérfræðingur
  • Dr. Maria Ackrén, prófessor í stjórnmálafræði með sérstaka áherslu á sjálfstjórn eyja
  • Dr. Mike Pavelec, forstöðumaður, Schriever Space Scholars (USSF), Johns Hopkins University – SAIS. Washington DC, USA
  • Dr. Rachael Lorna Johnstone, prófessor, Lagadeild Háskólans á Akureyri
  • Dr. Rasmus Gjedssö Bertelsen, prófessor
  • Dr. Renuka Badhe, Formaður skipulagsendurskoðunarnefndar (Organisational Review Commtee), IASC
  • Dr. Sigríður Dalmannsdóttir, sérfræðingur
  • Dr. Sölmundur Karl Pálsson - Stundakennari við Mannfræðideild og Auðlindastofnun Háskólans í Manitoba og rannsakandi við Háskólann í Winnipeg.

Umsóknir eru nú komnar í ráðningarferli samkvæmt reglum HA um ráðningar í akademískar stöður en gert er ráð fyrir að ráða í stöðuna sem fyrst að því ferli loknu.