Kynntu þér námið, hittu stúdenta og starfsfólk og upplifðu stemminguna í HA fimmtudaginn 5. nóvember kl. 11-13
Háskólinn á Akureyri býður öllum áhugasömum í heimsókn á HA-daginn, opinn dag í háskólanum, fimmtudaginn 5. nóvember. Hvort sem þú ert að velta fyrir þér næstu skrefum í námi eða vilt einfaldlega kynnast háskólalífinu er þetta kjörið tækifæri til að kíkja við, spyrja spurninga og kynnast því sem HA hefur upp á að bjóða.
Kynntu þér námið frá fyrstu hendi
Á HA-deginum verða allar námsleiðir í grunnnámi kynntar á básum þar sem stúdentar taka á móti gestum og deila reynslu sinni af náminu og félagslífinu. Starfsfólk verður einnig á staðnum og gestir geta kynnt sér stoðþjónustu háskólans, þann stuðning sem stendur stúdentum til boða og húsnæðismöguleika á stúdentagörðunum.

„Stúdentarnir okkar eru hjartað í HA-deginum. Þau taka svo vel á móti gestum og deila af einlægni sinni reynslu af náminu og háskólalífinu. Fyrir þau sem eru að velta fyrir sér háskólanámi er ómetanlegt að geta spjallað við fólk sem er í náminu, spurt spurninga og fengið að heyra hvernig þetta er í raun og veru. Við erum stolt af háskólanum okkar og hlökkum til að sýna gestum allt það sem hér er í boði,“ segja Sólveig María Árnadóttir og Silja Rún Friðriksdóttir, skipuleggjendur HA-dagsins.
Sjáðu aðstöðuna og mátaðu þig við HA
Boðið verður upp á skipulagðar gönguferðir um háskólasvæðið þar sem gestir fá að kynnast fjölbreyttri og vel búinni aðstöðu HA. Á leiðinni verður meðal annars litið inn í kennslustofur, rannsóknastofu, líkamsræktarsal og aðstöðu stúdenta. Þannig gefst tækifæri til að sjá allt það sem háskólasvæðið hefur upp á að bjóða, bæði fyrir námið og lífið utan kennslustofunnar.

Að dagskrá lokinni verður boðið til pizzuveislu.
Öll velkomin í heimsókn
Á HA-deginum tökum við á móti framhaldskólanemum frá Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Framhaldsskólanum á Laugum, Framhaldsskólanum á Húsavík, Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra og Menntaskólanum á Tröllaskaga.
Dagurinn er jafnframt opinn öllum þeim sem vilja kynna sér háskólann. Þú þarft því ekki að vera hluti af skólahópi til að koma í heimsókn, öll eru hjartanlega velkomin.
HA-dagurinn á Facebook
Kíktu til okkar á HA-daginn 5. nóvember kl. 11-13. Við hlökkum til að sjá þig!