Viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogarinnar 2025, Jafnrétti er ákvörðun, haldin við hátíðlega athöfn.
Frábær árangur á meðal þátttakenda í Jafnvægisvog FKA
Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í dag sína árlegu viðurkenningarathöfn en athöfnin var fyrst haldin árið 2019. Í ár er fjöldi viðurkenningarhafa alls 128 en það eru þeir þátttakendur sem náð hafa markmiði verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn / efsta lagi stjórnunar.
Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogarinnar, opnaði hátíðina og hrósaði stjórnendum fyrir eftirtektarverðan árangur í jafnréttismálum. Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo, flutti fræðandi erindi undir heitinu „Er þetta ekki komið?“ og dómsmálaráðherra, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, flutti áhugavert og hvetjandi ávarp.
Að hreyfiaflsverkefninu standa, auk FKA, dómsmálaráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, Pipar\TBWA, Ríkisútvarpið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá.
Háskólinn á Akureyri á meðal þeirra 128 sem hlutu viðurkenningu
Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til níutíu fyrirtækja, tuttugu og tveggja opinberra aðila og sextán sveitarfélaga úr hópi þeirra 253 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Elín Díanna Gunnarsdóttir, aðstoðarrektor HA tók við viðurkenningunni fyrir hönd háskólans.

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði.
„Það er ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög í Jafnvægisvog FKA sinna jafnréttismálum af metnaði. Þrátt fyrir þennan góða árangur er ljóst að enn er langt í land með að ná fullu jafnrétti. Það er mikilvægt að hvert og eitt fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag skoði stöðu sína og krefjist þess að kynjahlutfall í æðstu stjórnunarstöðum sé sem jafnast, því jafnrétti er ekkert annað en ákvörðun,“ að sögn Bryndísar Reynisdóttur, verkefnastjóra Jafnvægisvogarinnar.
Jafnrétti hefur bein áhrif á umhverfið.
Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fylgir tré að gjöf til gróðursetningar í Jafnréttislundi FKA, sem viðurkenningarhafar gróðursetja sjálfir í lundinum föstudaginn 10. október. Með því geta þátttakendur lagt sitt af mörkum til að draga úr kolefnisfótspori og jafnframt sýnt stuðning við jafnréttismál með táknrænum hætti.
Við val á trjám í lundinn er horft til þess að velja margar ólíkar tegundir af trjám, sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin stuðlar að. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum með auknu jafnrétti.
Frekari upplýsingar um FKA og Jafnvægisvogina má finna hér.