Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á rannsakendum við Háskólann á Akureyri. Valgerður Pálmadóttir, lektor við Kennaradeild, er vísindamanneskja októbermánaðar.
Forvitnin sem leiddi til Finnlands
„Ég er fædd í Svíþjóð, þar sem foreldrar mínir voru í námi þegar þau kynntust, en ólst upp í gamla Vesturbænum í Reykjavík. Þar gekk ég í Vesturbæjarskóla og síðar Hagaskóla áður en ég lauk stúdentsprófi af félagsfræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð.“
Frá unga aldri hafði Valgerður mikinn áhuga á samfélaginu, hugmyndum og því hvernig fólk skilur heiminn. „Sú forvitni leiddi mig í heimspeki og félagsfræði við Háskóla Íslands. Samhliða náminu sótti ég öll kynjafræðinámskeið sem voru í boði og skrifaði lokaritgerð um femíníska heimspekinginn Luce Irigaray og hugmyndir hennar um líkamleika, sjálfsmynd og tungumál.“
Eftir námið fann Valgerður sig aftur í Svíþjóð og þá í Gautaborg, þar sem hún hóf nám í hugmyndasögu. „Eftir meistaranámið í Gautaborg ferðaðist ég meðal annars um Indland og bjó í eina önn í París þar sem ég fór á frönskunámskeið en endaði svo á því að fara til Íslands í eitt ár og taka kennsluréttindi. Ég fór þó ekki að kenna heimspeki í framhaldsskóla eftir kennslufræðinámið eins og ég hafði stefnt að því ég komst inn í doktorsnám í hugmyndasögu í Norður-Svíþjóð, nánar tiltekið í Umeå. Þetta ár sem ég bjó á Íslandi kynntist ég finnskum heimspekingi sem var í skiptinámi í Reykjavík. Síðar fluttum við finnski skiptineminn saman til Uppsala og stofnuðum fjölskyldu. Það var svo ekki fyrr en haustið 2022 sem við flytjum til Íslands saman. Fyrst starfaði ég við Háskóla Íslands sem nýdoktor og stundakennari og haustið 2025 datt ég í lukkupottinn og fékk tækifæri til að ganga til liðs við Kennaradeild.“
Eru hefðir og norm náttúruleg og óumbreytanleg?
Rannsóknir Valgerðar snúast í grunninn um það hvernig menningarlegt og sögulegt samhengi mótar skilning okkar á samfélaginu, framtíðinni og okkur sjálfum. „Ég hef lengi haft áhuga á því hvernig hugmyndir geta orðið afl sem knýr fram breytingar og hvernig þær lifa áfram í stofnunum, menningu og pólitík. Í gegnum tíðina hef ég rannsakað hugmyndir um jafnrétti, frelsi og jöfnuð og tengsl þeirra við menntun, vald og margbreytileika. Mér finnst sérstaklega spennandi að skoða félagslegar hreyfingar og pólitískar hugsjónir í sögulegu samhengi og greina hvernig þær hafa áhrif á samtímann.“
„Undanfarin ár hafa friðarhreyfingar og hugmyndasaga friðarhugtaksins verið í forgrunni hjá mér. Ég nálgast þessi viðfangsefni alltaf með gagnrýnu sjónarhorni og áhuginn á femínískri heimspeki og gagnrýnum kenningum fylgir mér inn í flest rannsóknaverkefni.“
Valgerður bætir við að hún telji afar mikilvægt að halda áfram að rannsaka hvernig sagan hefur áhrif á þau viðmið sem fólk tekur stundum sem sjálfsögðum hlut. „Við fæðumst inn í ákveðið samfélag, með tungumál, hefðir og norm sem geta virst náttúruleg og óumbreytanleg. Um leið kennir sagan okkur að hlutirnir hafa ekki alltaf verið eins og þeir eru í dag og þurfa ekki heldur að verða þannig í framtíðinni. Í því felst bæði mikilvægt lærdómsferli og ákveðin von.“
Farið frá hinu áþreifanlega yfir í hið almenna og til baka
Valgerður tekur hugmyndasöguna og áhugann ásamfélaginu með sér í kennsluna. Hún kennir í grunnnámi meðal annars námskeið þar sem verðandi kennarar læra að nýta nærsamfélagið og umhverfið sem námsvettvang. „Þar skoðum við hvernig hægt er að færa kennsluna út fyrir veggi skólastofunnar og tengja saman náttúru, sögu, menningu og samfélag. Ég hef sérstakan áhuga á grenndarfræðum og þeim möguleikum sem felast í því að hefja ferðina í hinu kunnuglega og daglega. Þegar nemendur skoða staðbundna náttúru, byggingar, sögu eða reynslu fólks í nærumhverfi sínu opnast leiðir til að tengja þá þekkingu við stærri samhengi. Mér finnst heillandi að fara frá hinu áþreifanlega yfir í hið almenna og aftur til baka.“
„Auk þess kenni ég námskeið á framhaldsstigi þar sem við tökum fyrir álitaefni í menntamálum og rýnum í menntapólitík, stefnur og strauma. Þar njótum við þess að fá gestafyrirlesara úr fræðasamfélaginu auk þess sem reynsla stúdenta sjálfra gegnir mikilvægu hlutverki. Margir þeirra hafa starfað lengi innan menntakerfisins og umræður í kennslustundum verða því oft gagnrýnar, fjölbreyttar og afar lærdómsríkar.“
Finnska saunan lausnin við mörgum áhyggjunum
„Þegar vinnunni sleppir sækjum við fjölskyldan gjarnan til Finnlands þar sem mér finnst fátt betra en að slaka á í saunu, sigla um skerjagarðinn, heimsækja eyjarnar þar og synda í sjónum. Á Íslandi finnst mér gaman að fara í útilegur, veiðiferðir á hálendinu og fjallgöngur, svo lengi sem fjöllin eru hvorki of há né of brött.“
Við þökkum Valgerði samtalið og kveðjum hana þar sem hún er kannski á leiðinni í rökræður um hvort hægt sé að læra af sögunni eða á leið að axla poka fyrir fjallgöngu.
Umfjöllun á Instagram