Afhending Grænfánans

10. apríl 2026 kl. 12:30
Flöggum Grænfánanum í sjötta sinn

Háskólinn á Akureyri fær Grænfánann í sjötta sinn og því ber að fagna!

Fulltrúi Landverndar mun afhenda rektor Háskólans á Akureyri í sjötta sinn við formlega athöfn föstudaginn 10. apríl. Mæting er í Miðborg.

Háskólinn á Akureyri fékk Grænfánann fyrstur íslenskra háskólaárið 2013 og var jafnframt með fyrstu háskólum í heiminum til þess að flagga Grænfánanum.

Grænfáninn er veittur af Landvernd sem hluti af alþjóðlegu umhverfismenntaverkefni og er viðurkenning til þeirra skóla sem sýna fram á raunverulega og sjálfbæra skuldbiningu í umhverfismálum. HA er einn af tveimur íslenskum háskólum sem tekur þátt í Grænfánaverkefninu. Það að fá Grænfánann afhentan í sjötta sinn er vitnisburður um óþreytandi starf stúdenta og starfsfólks sem hafa lagt hönd á plóg þegar kemur að umhverfismálum. Við erum sannarlega stolt af öllum sem hafa lagt sitt ar mörkum til þessa árangurs.

Markmið Grænfánaverkefnisins eru að:

  • Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
  • Efla samfélagskennd innan skólans.
  • Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
  • Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
  • Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
  • Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
  • Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.

Nánar má lesa um verkefnið inn á heimasíðu Landverndar.

Öll velkomin!