Ársfundur

14. maí 2025 kl. 14:00-15:30
Ársfundur Háskólans á Akureyri fyrir starfsárið 2024 fer fram miðvikudaginn 14. maí og eru öll velkomin

Ársfundur Háskólans á Akureyri fyrir starfsárið 2024 fer fram miðvikudaginn 14. maí kl. 14:00 og eru öll velkomin

Vinsamlegast skráðu þátttöku þína á ársfundinn hér

Dagskrá

  • Fundarsetning
  • Ávarp Áslaugar Ásgeirsdóttur rektors HA
  • Ávarp Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
  • Ársreikningur kynntur
    Hólmar Erlu Svansson, framkvæmdastjóri Háskólaskrifstofu
  • Annáll 2024 í máli og myndum
  • Örkynning rannsakanda - Finnur Friðriksson, dósent við Kennaradeild
  • Viðhorf til Háskólans
  • Starfsfólk heiðrað

Fundarstjóri er Hildur Friðriksdóttir, alþjóðafulltrúi og verkefnastjóri á Miðstöð alþjóðasamskipta
Ef þú hefur ekki tök á því að vera með okkur á staðnum getur þú tekið þátt í gegnum streymi hér.

Móttaka að fundi loknum

Að ársfundi loknum er boðið til móttöku með léttum veitingum í Miðborg þar sem skálað verður fyrir auknum heimildum til doktorsnáms. Þar mun Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna segja nokkur orð.