Doktorsvörn í sálfræði

<span class="month">23</span>nóv. <span class="time">kl. 10:00-14:00</span>
Lada Zelinski ver doktorsritgerð sína

Mánudaginn 23. nóvember mun Lada Zelinski verja doktorsritgerð sína í sálfræði við Háskólann á Akureyri. Doktorsritgerðin ber heitið: Umhverfis- og einstaklingsbundnir þættir í þunglyndiseinkennum á Íslandi: Hlutverk árstíðar, umhverfistengdra skapbreytinga og dægursveifluhneigðar.

Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Dr. Yvonne Höller, prófessors í sálfræði við Sálfræðideild Háskólans á Akureyri auk, Dr. Arne C. Bathke, prófessors í tölfræði við Háskólann í Salzburg í Austurríki og Dr. Ragnars P. Ólafssonar, prófessors í sálfræði við Háskóla Íslands sem skipuðu einnig doktorsnefdina.

Andmælendur eru Dr. Timo Partonen, læknir og rannsóknarprófessor við Finnsku lýðheilsu- og velferðarstofnunina (THL) í Helsinki, Finnlandi og Dr. Simon Nygaard Øverland, prófessor og forstöðumaður Miðstöðvar um alþjóðlega heilsu við Háskólann í Bergen í Noregi.

Dr. Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, sviðsstjóri Rannsókna- og doktorsnáms og Dr. Mehmet Harma, staðgengill forseta Hug- og félagsvísindasviðs munu stýra athöfninni.

Um doktorsefnið

Lada Zelinski fæddist í Kasakstan og ólst upp í Þýskalandi. Hún stundaði nám í Hollandi og lauk þar BA-gráðu í sálfræði frá Radboud háskólanum í Nijmegen og síðar meistaragráðu í taugasálfræði frá Maastricht háskóla. Námsferill hennar leiddi hana aftur til Þýskalands þar sem hún lauk annarri meistaragráðu í þverfaglegum taugavísindum frá Goethe háskólanum í Frankfurt, sem dýpkaði áhuga hennar á þeim taugakerfum sem liggja að baki mannlegri hegðun.

Árið 2022 innritaðist Lada í doktorsnám við Háskólann á Akureyri og flutti til Íslands til að ganga til liðs við rannsóknarhóp Yvonne Höller til að starfa við EPiC SAD rannsóknina, sem kannar umhverfis-, lífeðlisfræðilega og hugræna áhættuþætti fyrir árstíðabundnum geðröskunum, þar á meðal útbreiðslu þeirra á Íslandi. Vinna hennar innan verkefnisins fólst aðallega í faraldsfræðilegum rannsóknum og gagnasöfnun úr heilaritum. Í doktorsritgerð sinni kannar hún hvernig umhverfisaðstæður, ásamt einstaklingsbundnum mun á veðurnæmi, dægursveiflum og lífstílshegðun, tengjast þunglyndiseinkennum og hvernig þessi tengsl eru breytileg yfir árið á Íslandi.

Í doktorsnámi sínu fór Lada í nokkrar rannsóknarheimsóknir, þar á meðal til Rannsóknarstofnunar fyrir svefn, vitsmuni og meðvitund í Salzburg, til Christian Doppler háskólasjúkrahússins í Salzburg, til g.tec medical engineering GmbH í Schiedlberg og einnig til Sapienza háskólans í Róm.

Ágrip

Í doktorsritgerðinni er sjónum beint, í þremur rannsóknum, að umhverfis- og einstaklingsbundnum þáttum í þunglyndiseinkennum á Íslandi, landi sem liggur norðarlega og þar sem mikill munur er á dagsbirtu og veðurfari eftir árstíðum. Í fyrstu rannsókninni var skimunarlisti notaður ásamt hálfstöðluðu geðgreiningarviðtali til að meta árstíðabundnar sveiflur í þunglyndiseinkennum og þunglyndisröskun í lagskiptu úrtaki Íslendinga. Vegið algengi árstíðabundins þunglyndis var mun hærra samkvæmt skimunarlista, eða 17,86%, heldur en samkvæmt geðgreiningarviðtali, eða 2,24%, sem er í samræmi við rannsóknir í löndum nær miðbaug og bendir til ofmats á áhrifum hnattlegu landa á þunglyndi, ef sjálfsmatsskimunarlistar eru eingöngu notaðir. Í annarri rannsókninni voru skoðuð tengsl skaps fólks við staðbundið hita- og birtustig og hvort þeir þættir tengdust alvarleika þunglyndiseinkenna. Niðurstöður sýndu að verra skap þegar kalt var í veðri og dagsbirta minni, tengdist alvarlegri einkennum og að tengsl hitastigs og þunglyndiseinkenna var háð (ó)þoli fólks fyrir kaldara hitastigi. Í þriðju rannsókninni var dægursveifluhneigð og neysla orkudrykkja skoðuð í tengslum við einkenni þunglyndis og svefnleysis með árstíðabundnum mælingum í eitt ár. Niðurstöður sýndu að kvöldhneigt fólk hafði meiri þunglyndiseinkenni á grunnlínu að sumri og að neysla orkudrykkja tengdist þunglyndiseinkennum þegar tók að hausta, sér í lagi hjá kvöldhneigðu fólki. Samantekið, benda niðurstöður þessara þriggja rannsókna til að árstíðabundið þunglyndi, greint sem geðröskun í geðgreiningarviðtali, sé tiltölulega sjaldgæft en að sveiflur í þunglyndiseinkennum eftir árstíðum sé mun algengari þegar miðað er við sjálfsmat fólks. Niðurstöðurnar benda einnig til að áhrif umhverfisþátta á þunglyndiseinkenni séu háð einstaklingsbundnu mati og þoli fólks, frekar en þáttunum einum og sér og að tengsl orkudrykkja við þunglyndiseinkenni séu háð dægursveifluhneigð og árstíðum. Niðurstöður rannsóknaverkefnisins benda til að tengsl árstíðabundinna umhverfisþátta og þunglyndiseinkenna séu háð einstaklingsbundnum tilhneigingum. Loftslagsbreytingar móta umhverfi og aðstæður fólks. Aukinn skilningur á samspili umhverfis og einstaklingsbundinna þátta er því mikilvægur og getur nýst til að afmarka viðkvæma hópa og veita markvissari fræðslu og stuðning.

Öll hjartanlega velkomin!