Háskóladagurinn á Akureyri

11. mars 2026 kl. 11:00-13:00
Kynntu þér allt háskólanám á Íslandi á einum stað!

Háskóladagurinn verður haldinn á Akureyri 11. mars!

Allir háskólar landsins standa að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna fjölbreytt námsframboð sem í boði er á Íslandi.

Langar þig í háskólanám? Ef svarið er já, þá vilt þú ekki láta þetta tækifæri framhjá þér fara. Kíktu í Háskólann á Akureyri milli klukkan 11 og 13 og kynntu þér allt háskólanám á einum stað

  • Stúdentar og starfsfólk allra háskóla landsins verða tilbúnir til að spjalla við gesti dagsins. Við hvetjum áhugasöm til þess að kíkja í heimsókn og nýta tækifærið til þess að spyrja hvaðeina sem þér dettur í hug um draumanámið og háskólalífið!

Hvað vilt þú verða?

Hér á vefnum getur þú kynnt þér allt grunnám við HA og fengið upplýsingar um námið og möguleika að námi loknu. Í HA er einnig að finna einstakar námsleiðir sem þú finnur hvergi annars staðar.

Við hlökkum til að sjá þig!