Háskóladagurinn á Ísafirði

5. mars 2026 kl. 12:00-13:30
Velkomin á Háskóladaginn!

HÁSKÓLADAGURINN VERÐUR á ísafirði 5. MARS!

Allir háskólar landsins standa að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna fjölbreytt námsframboð sem í boði er á Íslandi.

Háskóladagurinn verður í Menntaskólanum á Ísafirði 5. mars og þá gefst áhugasömum tækifæri til þess að kynna sér allt grunnnám á einum stað!

Hvað vilt þú verða?

Hér á vefnum getur þú kynnt þér allt grunnám við HA og fengið upplýsingar um námið og möguleika að námi loknu. Í HA er einnig að finna einstakar námsleiðir sem þú finnur hvergi annars staðar.

Nýttu þér tækifærið til að spjalla við starfsfólk og stúdenta um nám, möguleika að námi loknu, háskólalífið og allt þar á milli.

VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!