<span class="month">16</span>nóv. <span class="time">kl. 12:00-13:00</span>
Málstofa í tilefni dags íslenskrar tungu
Norðlenskt, nýtt og svolítið blótað — Málstofa í tilefni dags íslenskrar tungu
Í tilefni af degi íslenskrar tungu bjóðum við öll velkomin á opna málstofu í stofu M102 við Háskólann á Akureyri, þar sem íslenskan fær að njóta sín í allri sinni fjölbreytni.
Hvernig tölum við um málið okkar — og hvað segir það um okkur? Við sögu koma norðlenskur framburður og stoltið sem honum fylgir, nám og kennsla íslensku sem annars tungumáls, deilur um mannanöfn og hlutverk húmors og blótsyrða í íslenskukennslu.
Dagskrá
„Maður er náttúrulega svo stoltur af því að vera Norðlendingur“ : Viðhorf Norðlendinga til eigin framburðar
Kristín Margrét Jóhannsdóttir og Finnur Friðriksson, Kennaradeild
TALÍS - kynning. Verkefnið fjallar um nám og kennslu íslensku sem annars tungumáls
Hermína Gunnþórsdóttir, Kristín Margrét Jóhannsdóttir og Finnur Friðriksson, Kennaradeild
Jónas Rannveigarson eða Hallgrímsson? Deilur um nöfn á Íslandi á 19. og 20. öld
Páll Björnsson, Félagsvísindadeild
Helvítis fokking fokk: Húmor og blótsyrði í kennslu íslensku sem annars máls
Ingibjörg Sigurðardóttir, Félagsvísindadeild
Öll eru hjartanlega velkomin, hvort sem þau hafa sérstakan áhuga á íslensku eða eru einfaldlega forvitin um tungumálið sem við deilum.
Komdu og hlustaðu, taktu þátt í spjallinu og fagnaðu íslenskunni með okkur!