Stétt og stjórnmál á Íslandi

<span class="month">10</span>nóv. <span class="time">kl. 11:00-12:00</span>
Félagsvísindatorg

Öll velkomin á Félagsvísindatorg!

Stétt og stjórnmál á Íslandi

Stéttaskipting hefur lengi mótað íslensk stjórnmál, þar á meðal þróun flokkakerfisins, uppbyggingu velferðarkerfisins, dreifingu valds og bjarga og kosningahegðun.

Á næsta Félagsvísindatorgi fjallar Guðmundur Oddsson, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, um stéttaójöfnuð, stéttavitund og stéttastjórnmál á Íslandi. Hann greinir tengsl stéttar og kosningahegðunar með gögnum Íslensku kosningarannsóknarinnar frá 1983 til 2021 og spurningalistagögnum frá 2025. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi frekari rannsókna á áhrifum stéttar í íslenskum stjórnmálum.

Erindið byggir á rannsóknum Guðmundar og Kristins Más Ársælssonar, dósents í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, á áhrifum stéttaskiptingar á stjórnmálahegðun.

Félagsvísindatorgið fer fram í stofu M101 og geta áhugasöm einnig fylgst með hér á Zoom

Guðmundur Oddsson

Dr. Guðmundur Oddsson er prófessor í félagsfræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknir hans hverfast um stéttaskiptingu, frávik og félagslegt taumhald og hefur hann birt fjölmargar fræðigreinar um þessi viðfangsefni.

Fyrr á þessu ári gaf SAGE út bókina The Power of Sociology: Grasping Our Unequal World eftir Guðmund, Jenny M. Stuber, prófessor við Háskólann í Norður-Flórída, og James M. Thomas, prófessor við Háskólann í Mississippi.

Verið hjartanlega velkomin!


Félagsvísindatorg er opið öllum áhugasömum. Við hvetjum fólk til að kíkja við, fræðast og taka þátt í áhugaverðri umræðu. Það er alltaf ánægjulegt að fá gesti til okkar í Háskólann á Akureyri!