Stjórnun í 100% fjarnámi

14. maí 2025 kl. 17:30
Kynntu þér framhaldsnám í stjórnun við Viðskiptadeild HA!

Öll velkomin á opinn kynningarfund á Teams um framhaldsnám í stjórnun!

Viðskiptadeild býður áhugasömum á rafrænan kynningarfund á Teams um framhaldsnám í stjórnun. Umsóknarfrestur er til 5. júní.

Fyrirkomulag fundarins:

  • Sigurður Ragnarsson, deildarforseti Viðskiptadeildar, og Hjördís Sigursteinsdóttir, brautarstjóri meistaranámsins og varadeildarforseti Viðskiptadeildar, kynna námið
  • Spurt & svarað

Smelltu hér til að tengjast fundinum

MM og MS í stjórnun

Námið hefur það að markmiði að nemendur öðlist sérhæfða þekkingu á stjórnun sem nýtist í þeirra störfum úti í atvinnulífinu og í samfélaginu, og býður því upp á breiðan grunn í stjórnun skipulagsheilda. Þá er markmiðið að nemendur öðlist þekkingu og hæfni til stjórnunar fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.

  • MM gráða í stjórnun er 90 eininga viðbótarnám á meistarastigi án lokaritgerðar. Nemendur ljúka 90 ECTS einingum í námskeiðum.
  • MS gráða í stjórnun er 90 eininga meistaranám þar sem nemendur ljúka 60 ECTS einingum í námskeiðum og MS ritgerð (30 ECTS einingar).
  • Mörg spennandi og gagnleg námskeið eins og: Gervigreind og forysta, Verkefnastjórnun, Sjálfbær nýsköpun og frumkvöðlaforysta, Stjórnendur og starfsumhverfi, Breytinga- og krísustjórnun, Mannauðsstefna, mælikvarðar og áhrif á viðskipti og Árangursrík forysta.

Möguleikar að námi loknu

Meistaranám í Stjórnun gerir nemendum kleift að velja úr fjölbreyttum stjórnunar- og sérfræðingsstöðum hjá fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum, bæði innanlands og utan. Námið veitir einnig þeim sem eru þegar í stjórnunar-, forystu- og ábyrgðarstöðum tækifæri til að vaxa og efla sig enn frekar.

Viltu vita meira?

Við hlökkum til að sjá þig!