Verkefnastjóri á þjónustuborði nemendaskrár

Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% ótímabundið starf verkefnastjóra á Þjónustuborði nemendaskrár. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnastjóri á Þjónustuborði nemendaskrár er í samskiptum við nemendur, starfsfólk og aðra sem leita eftir upplýsingum um starfsemi háskólans. Verkefnastjóri sinnir fjölbreyttum verkefnum, þ.á.m. afgreiðir vottorð, leiðbeinir í umsóknarferli og afgreiðið umsóknir um nám, leiðbeinir og sinnir skráningum í námskeið og próf, kemur að brautskráningu, sinnir símsvörun á skiptiborði og bókar ferðir starfsfólks.

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf er skilyrði, háskólapróf er kostur
  • Gerð er krafa um þekkingu og reynslu sem nýtist í starfi
  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund, jákvæðni, skipulagshæfileika, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð ásamt ábyrgðarkennd
  • Þekking á skráningarkerfum kostur
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg sem og hæfni til að tileinka sér nýja færni/þekkingu
  • Mjög gott vald á íslensku, jafnt töluðu sem rituðu máli er nauðsynleg
  • Gott vald á ensku, jafn töluðu sem rituðu máli er nauðsynleg
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
  • Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjenda.

Frekari upplýsingar um starfið

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 17.09.2026

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar veitir

Bára Sif Sigurjónsdóttir, forstöðumaður nemendaskrár. Tölvupóstur: bara@unak.is. Sími: 460-8042


Sækja um starf